Eldfjallið sem „kæfði Evrópu"
Kanadíska tímaritið Maclean's fjallar í dag í löngu máli um eldgosið í Eyjafjallajökli , áhrif þess og afleiðingar eða eins og blaðamaður orðar það sjálfur, um „eldfjallið sem kæfði Evrópu".
Í greininni er meðal annars sagt að Eyjafjallajökull hafi opnað augu fólks fyrir því hversu háð við erum orðin ódýrum og fljótlegum flugsamgöngum, því um allan heim hafi fólk þurft að sætta sig við lamandi áhrif eldgossins, jafnt blómabændur og ávaxtaframleiðendur sem kvikmyndastjörnur, æðstu þjóðhöfðingjar og jafnvel heilu fótboltaliðin.
Blaðamaður Maclean's rifjar upp að eftir þekkt dæmi um alvarlegar afleiðingar ösku úr eldfjöllum á 9. áratugnum, s.s. þegar stórar farþegaflugvélar misstu afl annars vegar yfir Indónesíu árið 1982 og hinsvegar yfir Alaska 1989, þá hafi verið talin full ástæða til að setja á alþjóðlegt viðbúnaðarkerfi í flugumferð vegna öskuskýja. Haft er eftir Richard Houges, yfirmanni ráðgjafarstofu vegna ösku í Kanada, að aðeins lítið magn af ösku geti valdið milljóna dollara tjóni á vélbúnaði flugvéla.
Einnig er bent á í greininni að eldgosið í Eyjafjallajökli hafi þrátt fyrir allt verið heldur smátt og aðeins spúið 2.700 tonn af brennisteinsdíoxíði á dag. Til samanburðar hafi t.d. eldfjallið Pinatubo á Filippseyjum spúið 18 milljónum tonna á dag þegar það gaus árið 1991 og þannig haft áhrif á heilu veðurkerfin og kælt andrúmsloft jarðar um 0,6°C í heilt ár. Eyjafjallajökull dreifi hinsvegar öskunni svo víða vegna þess að gosið sé undir jökli og vatnsgufan beri öskuna lengra.
Tímaritið segir að það furðulega sé í raun ekki hversu miklum vanda Eyjafjallajökull hafi valdið, heldur frekar að þetta skuli ekki gerast oftar, því eldfjöll undir jöklum sé að finna víða allt frá Japan til Alaska. Á Íslandi einu saman hafi 33 eldfjöll gosið frá lokum síðustu ísaldar og hvert og eitt þeirra hafi fulla burði til að valda sambærilegum, ef ekki meiri, töfum á flugsamgöngum.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 21. apríl 2010, Innlent Ísland alræmt og þjóðin í sjálfsleit
- Fimmtudagur, 22. apríl 2010, Innlent Mesta törn björgunarsveita síðan í gosinu í Eyjum
- Föstudagur, 23. apríl 2010, Innlent Íslensk kvikmyndagerð hagnast á gosinu
- Miðvikudagur, 21. apríl 2010, Innlent Ástandið ekki eins slæmt og óttast var
- Þriðjudagur, 10. ágúst 2010, Innlent Mátti ekki dreifa minnisblaði
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































