Öskufall í Fljótshlíð

Mökkinn leggur nú til norðurs frá Eyjafjallajökli, eins og sést í vefmyndavél Mílu á Hvolsvelli. stækka

Mökkinn leggur nú til norðurs frá Eyjafjallajökli, eins og sést í vefmyndavél Mílu á Hvolsvelli. eldgos.mila.is

Öskufall varð í Fljótsdal, innst í Fljótshlíð, í morgun. Anna Runólfsdóttir, bóndi, sagði að óþægilegt væri að vera úti nema með rykgrímu og hlífðargleraugu. Hún sagði öskuna ákaflega fíngerða. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli hefur orðið var þar við fíngert ryk, sem líklega er aska. 

Anna í Fljótsdal sagði að öskufalls hafi gætt um stund í morgun. Askan fauk til jafnóðum og hún féll og sagði Anna að sjá mætti ösku í öllum grópum.

„Það skrýtna er að hjá okkur var hávaða austanátt í allan dag en mökkurinn stefndi beint í norður fyrir ofan okkur. Þar náði að rigna úr honum niður á okkur,“ sagði Anna.

Askan sást ekki fyrr en hún birtist á stéttinni og á diski sem þau í Fljótsdal settu út. Anna sagði að askan sé ákaflega fíngerð og hún sé í loftinu. Þægilegra sé að vera með rykgrímu utandyra og að hlífa augunum. „Þótt þetta sé ekki mikið þá er þetta óþægilegt,“ sagði Anna.

„Þetta er afskaplega fínn salli. Það sem maður nær að safna í lófann er eins og púður ef maður þreifar á því. Það er erfitt að finna fyrir þessu nema á milli tannanna. Þetta er svo fínlegt.“

Nú rýkur ekki mikið af aurunum þar sem flóðið úr Gígjökli hljóp fram á dögunum. Anna taldi að blotnað hafi í framburðinum og að hann muni rjúka síðar þegar þornar um.

Margar ær eru nú bornar í Fljótsdal. Nokkrar ær voru úti í morgun til að hafa rýmra um fé í fjárhúsunum. Um leið og vart varð við öskufall voru kindurnar teknar inn.

Hreinsun gengur vel

Lögreglan á Hvolsvelli sagði að dælubílar slökkviliða hafi verið notaðir við hreinsun á bæjum undir Eyjafjöllum í allan dag og reynst mjög vel. Mjólkurbílar hafa flutt vatn í dælubílana til að nýta þá betur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »
Brian Ferry á tónleikum

Brian Ferry lendir

15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Lántakendur varaðir við

Velta á fasteignamarkaði frá janúar til febrúar í ár var 46,335 milljarðar kr. en var ...
05:30 Grípi Seðlabankinn til þess ráðs að hækka vexti frekar gæti það haft veruleg áhrif á mánaðarlega greiðslubyrði af óverðtryggðum fasteignalánum. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sportbátur til sölu
Balyner 175, 2006 árgerð með 135 hestafla innanborðs bensín vél. Vagn, yfirbreið...
VW Polo árg. 2000, ekinn um 170.000 km
Nýskoðaður, ath.semd við púst og bremsuskálar að framan. Verð 200. þús. Upplýs. ...
Hillusamstæða
Hillusamstæða 28 ára gömul hillusamstæða til sölu, var keypti í Heimilisprýði á...
Hvítt rimlarúm á hjólum til sölu!
Fallegt hvítt rimlarúm á hjólum til sölu. Hægt að lækka aðra hliðina niður og 2 ...
 
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...