Þykkasta öskulagið norðan Seljavalla

Þykkt öskulag er norðan sundlaugarinnar á Seljavöllum.
Þykkt öskulag er norðan sundlaugarinnar á Seljavöllum. Reuters

Þykkasta öskulag í byggð mældist norðan sundlaugarinnar á Seljavöllum í síðustu mælingu jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands, að því er frem kemur á heimasíðu stofnunarinnar. Mældist öskulagið þar 5,5 cm. Askan er þykkari en 2 cm á um 5 km breiðu belti og liggur þykktarás öskulagsins austanvert við Lambfell, nánast beint í suður frá gígunum í toppi Eyjafjallajökuls.

Í byggð þynnist aska nokkuð hratt til beggja átta niður að 0,5 cm þykkt en þynnri dreifar náðu vestur að Hvammi og austur yfir Mýrdalinn, að því er segir í frétt á heimasíðu stofnunarinnar. „Öskulagið er lagskipt á því svæði sem skoðað var og skiptist í þrjú greinileg lög. Efsta lagið er fíngerðast og yfirleitt þynnra en 0,5 cm. Þetta lag rann saman í harða skán eftir að hafa blotnað og þornað aftur. Hin lögin tvö, sem eru heldur grófari í korninu, verða ekki eins hörð.“

Þá segir að askan sem féll sl. mánudag hafi verið töluvert grófari en sú sem féll sl. laugardag. Stærstu korn nýrri öskunnar séu um 0,5 cm í þvermál. 

Öskulag norðan sundlaugarinnar mælist 5,5 cm.
Öskulag norðan sundlaugarinnar mælist 5,5 cm. Reuters
Þykktarkort af ösku, hannað af starfsmönnum jarðvísindastofnunar.
Þykktarkort af ösku, hannað af starfsmönnum jarðvísindastofnunar. Af vef jarðvísindastofnunar.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert