Aðeins Egilsstaðavöllur opinn
Fjórar farþegaþotur voru í einu á Akureyrarflugvelli í gærkvöldi á meðan hann var enn opinn. mbl.is/Þorgeir
Takmarkanir á flugumferð gilda nú til og frá Keflavíkur-, Reykjavíkur- og Akureyrarflugvöllum. Engar blindflugsheimildir eru nú gefnar út fyrir Akureyrarflugvöll en Egilsstaðaflugvöllur er opinn allri umferð. Farþegaflugvél lenti á vellinum í nótt.
Spár um öskudreifingu bentu í gærkvöldi til að austanáttir verði ríkjandi næstu daga með hættu á viðvarandi öskuskýjum yfir landinu.
Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, er röskunin sem orðið hefur á flugi til og frá landinu sú mesta í sögunni.
Sú lykkja sem farþegar þurfa að leggja á leið sína hefur leitt til afbókana og Icelandair áætlar að daglegt tap vegna gossins sé um 100 milljónir.
Hundruð flugfarþega fóru um flugstöðina á Akureyri í gær en bæði hvetja flugfélögin farþega til að fylgjast vel með breytingum sem verða á áætlunum þeirra.
Mikill viðbúnaður var á Akureyrarflugvelli í gær, eftir að millilandaflugið færðist þangað yfir daginn. Alls fóru 12 vélar þaðan á loft og álíka margar lentu frá miðnætti í gær. Skiptu farþegarnir hundruðum sem fóru um völlinn og annríki því mikið í flugstöðinni. Hefur flugumferð um Akureyri ekki verið svo mikil í seinni tíð. Ekið var með farþega í millilandaflugi í rútum frá BSÍ milli Reykjavíkur og Akureyrar en vélar frá Kaupmannahöfn, London og Glasgow lentu í gær á Akureyri.
Vegna lokunarinnar í Keflavík setti Icelandair upp tengistöð í Glasgow fyrir flugið milli Evrópu og Bandaríkjanna. Síðan var flug til og frá Glasgow með þá farþega sem leið áttu til og frá Íslandi með félaginu.
Iceland Express bjóst við að fljúga daglega til Kaupmannahafnar og London á meðan aðstæður leyfðu hér á landi. Til viðbótar stóð til að fljúga til Alicante og Varsjár í dag. Alls fóru um 300 farþegar á vegum félagsins um Akureyri í gær og áætlað var að fjöldi farþega í dag yrði um 600 talsins.
Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Flugstoða segir þá aðgerðaáætlun hafa gengið vel, sem sett var í gang, í góðu samstarfi við embætti tollstjóra og lögreglu, auk slökkviliðsins á Akureyri sem bætti við mannskap og tækjum á vellinum. Flytjist millilandaflugið til Egilsstaða þarf svipaðan viðbúnað þar.
Horfur fyrir sjónflug voru heldur ekki góðar fyrir daginn í dag þannig að svo gæti farið að innanlandsflug legðist þá niður.




































