Búist við öskufalli norðvestur af eldstöðinni
Bændur úr Landeyjum heimsóttu nágranna sína undir Eyjafjöllum um helgina og aðstoðuðu við hreinsun öskunnar.
Veðurstofan segir, að búast megi við lítilsháttar öskufalli norðvestur og síðar vestur af eldstöðinni í Eyjafjallajökli í dag. Veðurstofan gerir ráð fyrir austlægri átt í dag, 8-13 m/s, en hvassara síðdegis. Gert er ráð fyrir lítilli úrkomu, en rigningu með köflum eftir hádegi.
Hreinsunarstarf á sveitabæjum sem verst urðu úti vegna öskufalls er í fullum gangi. Vagn Kristjánsson lögreglumaður hefur yfirumsjón með hreinsunarstarfinu. Hann segir aðkomuna að bæjunum ekki jafnsvarta og áður enda hafi slökkviliðsmenn vatnshreinsað húsin. Þá hafi sveitarfélagið beitt vinnuvélum við að skafa heimreiðar og bæjarhlöð.
Vagn segir enn verið að meta stöðuna og skipuleggja starfið. Hann ráðleggur þeim sem vilja hjálpa til við hreinsun að mynda hópa og senda hjálparboð á netfangið sveitin@hvolsvollur.is.
Elvar Eyvindsson, sveitarstjóri og bóndi í Austur-Landeyjum, segir brúnina vera að léttast á íbúum. „Þetta er ekki eins svart og þegar fólk var statt inni í svartasta mekkinum. Þegar léttir til þá léttist lundin. Að ekki sé talað um þegar svona margir vilja hjálpa til við að þrífa burtu mesta ófögnuðinn.“ Hann segir að ekki sé enn búið að skoða heiðar og afrétt. „Landgræðslan mun líklega koma að því. Það hefði líklega verið gott að eiga ennþá áburðarflugvél.“
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 17. maí 2010, Innlent Öskufall norður af Eyjafjallajökli
- Þriðjudagur, 18. maí 2010, Innlent Aska berst í Jökulsárhlíð
- Sunnudagur, 16. maí 2010, Innlent Öskufall suðaustur af eldstöðinni
- Fimmtudagur, 22. apríl 2010, Innlent Öskufall við eldstöðina
- Laugardagur, 17. apríl 2010, Innlent Áfram spáð norðanátt
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































