Enn óvissa með flug

Einmana flugbrautir á Keflavíkurflugvelli. stækka

Einmana flugbrautir á Keflavíkurflugvelli. Reuters

Öskuskýið frá Eyjafjallajökli heldur enn flugfarþegum og flugfélögum í óvissu. Millilandaflug hefur legið niðri á Keflavíkurflugvelli í dag. Flugstoðir hafa greint frá því að vellirnir í Keflavík og Reykjavík verði lokaðir til kl. 13. Nýjar upplýsingar um öskudreifingu eru væntanlegar um hádegisbil.

Þá ræðst hvort hægt verður að hefja áætlunarflug frá Keflavík í dag. Flugfélögin endurskipuleggja flugáætlanir sínar eftir því sem upplýsingar um öskudreifingu berast, að því er fram kemur á vef Keflavíkurflugvallar. Þeir farþegar sem eiga bókað flug í dag geta átt von á því að þurfa að fara norður til Akureyrar til að komast í flug, verði áfram lokað í Keflavík.

Fram kemur á vef Flugstoða að vonast sé til þess að Reykjavíkurflugvöllur muni opnast fyrir flugumferð síðdegis í dag. 

Þá er tekið fram að vellirnir á Akureyri og á Egilsstöðum séu ekki innan gjóskudreifingarsvæðis og því opnir fyrir allri umferð. Það verði þeir að öllum líkindum áfram næsta sólarhring.

Farþegar eru hvattir til þess að fylgjast vel með komu- og brottfarartímum og stöðum á vefsíðum Keflavíkurflugvallar og flugfélaganna þar sem breytingar geta orðið með skömmum fyrirvara.

Spáð er austan- og norðaustanátt í dag og áframhaldandi rigningu á Suðurlandi.  Gosmökkinn leggur því í vestur og suðvestur af eldstöðinni.  Aska er vel merkjanleg á bílum á Hvolsvelli í dag og gætir aðeins á Hellu.

Upplýsingar á komur og brottfarir á vef Keflavíkurflugvallar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »
Brian Ferry á tónleikum

Brian Ferry lendir

15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
Honda Civic ES 2006
Honda Civic ES árgerð 2006 svartur. Ekinn aðeins 61 þús. sjálfskiptur, topplúga,...
FORD TAURUS SES 2002
FORD TAURUS SES 2002 Ford Taurus SES árg 2002 ekinn 87.000 mílur sumar...
Ó.e.Lágmark 4h Íbúðarhúsnæði í 201 Kóp.
Óska eftir að leigja lágmark 4 herb, einbýli, rað, par, fjölbýli allt kemur til ...
 
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...
Til sölu
Til sölu
Viðskiptatækifæri Sey...