Mynd Profilm frumsýnd í Bandaríkjunum

Eldgosið séð frá Vestmannaeyjum. stækka

Eldgosið séð frá Vestmannaeyjum. mbl.is./Borkir Högnason

Kvikmyndagerðin Profilm tók heimildakvikmynd um eldgosin á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli og jökulhlaupið úr Gígjökli. Myndin verður sýnd í þáttaröðinni Naked Science (Nakin vísindi) og frumsýnd á besta sýningartíma hjá National Geographic í Bandaríkjunum annað kvöld.

Anna Dís Ólafsdóttir, yfirframleiðandi Profilm, er nú í Salt Lake City í Utah í Bandaríkjunum ásamt Jóhanni Sigfússyni, leikstjóra myndarinnar, þar sem verið er að klippa heimilda myndina og ganga frá henni til sýningar á vegum National Geographic.

„Við vorum drifin hingað út með sólarhringsfyrirvara. National Geographic ákvað að setja myndina á dagskrá með aðeins tveggja vikna fyrirvara,“ sagði Anna Dís.

„Það var ákveðið að klippa þetta hér úti og erum að vinna myndina með eftirvinnslufyrirtæki hér í Bandaríkjunum. Tíminn var afskaplega skammur og við höfðum minna en tvær vikur til að gera klukkutíma langa kvikmynd. Það þykir ekki mikið,“ sagði Anna Dís.

Mikill áhugi fyrir myndinni og Íslandi í Bandaríkjunum

Þau Anna Dís og Jóhann hafa lagt dag við nótt við að ljúka við kvikmyndina. Myndin verður síðan send um gervihnött til höfuðstöðva National Geographic í Washington D.C. því ekki gefst tími til að senda hana á spólu. Anna Dís sagði að það væri sjaldgæft að National Geographic gerði myndir með svo skömmum fyrirvara.

Anna Dís sagði það ekki algengt að National Geographic sýni myndir um samtímaatburði. Starfsmaður stöðvarinnar sagði m.a. við hana að eitthvað líkt þessu hafi aldrei áður gerst hjá National Geographic.

Hún sagði að starfsmenn sjónvarpsstöðvarinnar séu mjög spenntir fyrir sýningu myndarinnar. Myndin hefur einnig vakið mikinn áhuga og umtal. 

„Jóhann veitir 24 viðtöl við hina og þessa fjölmiðla hér í Bandaríkjunum í dag og á morgun. Þetta fær mikla umfjöllun hér. Hann talar bara um Ísland og líka að það sé alveg óhætt að fara til Íslands. Það er gott að geta gert eitthvað jákvætt,“ sagði Anna Dís.

Þau hjá Profilm höfðu haft samband við National Geographic áður en gosið braust út á Fimmvörðuhálsi og voru búin að safna talsverðu myndefni. Þegar gosið braust út var ákveðið að gera heimildarkvikmynd. „Þetta er svolítið magnað,“ sagði Anna Dís.

Þegar þau Jóhann komu heim á hótel í gærkvöldi, eftir 14 stunda vinnudag, kveiktu þau á sjónvarpinu og að sjálfsögðu á National Geographic. „Þá sáum við kynningarmyndina okkar sem er sýnd þrisvar á klukkustund,“ sagði Anna Dís.

Heimildarmyndin um eldgosið verður frumsýnd í Bandaríkjunum og á öðrum enskumælandi svæðum annað kvöld. Myndin verður sýnd á öðrum málsvæðum í maí samkvæmt heimildum Önnu Dísar.

Profilm er í raun að gera tvær heimildamyndir fyrir National Geographic um eldgosin og jarðfræði Íslands. Sú fyrri verður frumsýnd annað kvöld, eins og fyrr segir, og sú síðari líklega eftir um fjóra mánuði.  Í seinni myndinni verður meira fjallað um jarðfræði Íslands í víðara samhengi en því sem tengist eldgosunum tveimur.

Vinna mikið fyrir erlendar sjónvarpsstöðvar

Hinrik Ólafsson, framleiðandi hjá Profilm, sagði að Profilm hafi tekið allt myndefnið og sett það síðan í hendur National Geographic sem setji myndina saman. Hinrik taldi að þetta sé í fyrsta skipti sem heimildarmynd tekin af Íslendingum sé frumsýnd á besta sýningartíma hjá National Geographic.

„Við vinnum mikið við að taka á móti erlendum sjónvarpsstöðvum og að skipuleggja fyrir þær tökur hér á landi. Þá koma þær með sitt eigið tökulið. Við tökum líka mikið fyrir erlendar sjónvarpsstöðvar og höfum selt þeim efni. 

Þar á meðal er kvikmynd sem verður sýnd á fjölda sjónvarpsstöðva á þessu ári og heitir „Living on the Edge“ (Lifað á brúninni). Hún var tekin hér á landi og fjallar um náttúruöflin hér og samskipti fólksins við þau og það sem Ísland gefur af sér. Jarðhitann, fiskinn og aðrar auðlindir Íslands,“ sagði Hinrik.

Anna Dís Ólafsdóttir er yfirframleiðandi Profilm.

Anna Dís Ólafsdóttir er yfirframleiðandi Profilm. Brynjar Gauti

Hinrik Ólafsson hjá Profilm.

Hinrik Ólafsson hjá Profilm. Profilm.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »
Brian Ferry á tónleikum

Brian Ferry lendir

15:10 Söngvarinn Brian Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Nefnd fer yfir vegi og skipulag

Hugmyndir að Svínavatnsleið.
09:01 Í ráði er að skipa nefnd til að fara yfir lög og hlutverk sveitarfélaga og ríkisins við ákvarðanir um lagningu vega þar sem ágreiningur er á milli Vegagerðarinnar og sveitarfélaga. Meira »

Lét dólgslega og stökk í sjóinn

08:21 Karlmaður á þrítugsaldri gisti fangageymslur lögreglunnar á Akureyri í nótt, eftir að hafa látið dólgslega í miðbæ bæjarins og lagst að því búnu til sunds í sjónum. Maðurinn var afar ölvaður að sögn lögreglu. Meira »

Störfum í bönkum fækkað um 2.000

Friðbert Traustason. Formaður Sambands íslenskra bankamanna .
05:30 Störfum hjá fjármálafyrirtækjum hefur fækkað um 2.000 frá því vorið 2008. Útibúum bankanna hefur fækkað um helming á sama tíma. „Þetta hefur verið hreint hörmungarástand,“ segir Friðbert Traustason, formaður Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Meira »

Flugfarþegi lak plötu á netið

Umslag plötunnar Valtari.
05:30 Áttunda og nýjasta plata Sigur Rósar, Valtari , kom út í gær en hún er fyrsta breiðskífa sveitarinnar frá því Með suð í eyrum við spilum endalaust kom út fyrir fjórum árum. Meira »

Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti

07:43 Reykjavíkurborg hyggst auka útgjöld til hreinsunar á veggjakroti á þessu ári. Undanfarin ár hefur hreinsun að mestu verið innan miðborgarinnar en úthverfin hafa setið á hakanum. Meira »

Kostnaður við komu 4 milljónir

Wen Jiabao og Jóhanna Sigurðardóttir á Geysi
05:30 Ekki hefur verið sótt um aukafjárveitingu vegna kostnaðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við heimsókn kínverska forsætisráðherrans Wens Jiabaos. Meira »

Athugasemdir við Rússa

Rússnesk skip umskipa afla í Hafnarfjarðarhöfn eftir veiðar á Reykjaneshrygg.
05:30 Íslensk stjórnvöld hafa komið alvarlegum athugasemdum á framfæri við sendiherra Rússlands á Íslandi vegna karfaveiða Rússa á Reykjaneshrygg. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gott hjól á góðu verði
Til sölu Honda VTX1300R árg 2004 Góð dekk og nýlegir bremsuklossar. Akstur 26....
Coleman Bayside 12" fellihýsi árg. 2003 til sölu
Coleman Bayside árg. 2003, 12" fellihýsi til sölu. heitt og kalt vatn, sólarsel...
4 MANNA GÚMMÍBÁTUR
Til sölu 4 manna gúmmíbátur með 2,5 hp mótor og 3 bjargvestum. Burðargeta 400...
Húsnæði undir veitingarekstur til leigu.
Tilbúinn veitingastaður/bar til leigu á Laugavegi 55, laust strax. Um er að r...
 
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...
Sérhæft skrifstofustarf
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...