Fréttaskýring: Skemmtiferðaskipin halda sínu striki
Eftir Ágúst Inga Jónsson
Vel horfir með komur skemmtiferðaskipa til Reykjavíkur í sumar. Reyndar er útlit fyrir að skipin verði aðeins færri í ár en í fyrra, 75 á móti 80, en þar sem skipin sem hingað koma hafa verið að stækka, er útlit fyrir að farþegafjöldi í höfuðborginni verði svipaður og í fyrra eða um 70 þúsund.
Svo dæmi séu tekin þá er von á 29 skipum til Ísafjarðar í sumar á móti 27 í fyrra. Tíu skemmtiferðaskip eru væntanleg til Seyðisfjarðar í sumar, en þangað komu 15 skip í fyrra. Á báða þessa staði eru fleiri skip bókuð næsta sumar heldur en í ár.
Mikið í húfi
Mikið er í húfi að þessi grein ferðaþjónustunnar blómstri þegar óvissa er á mörgum öðrum sviðum. Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna, situr í dag fund samtaka 104 evrópskra hafna sem nefnast Cruise Europe. Hann sagðist eiga von á mörgum fyrirspurnum á fundinum um ástandið á Íslandi í kjölfar eldgoss og öskufalls og margir séu hræddir við Íslandsferð.„Þessi viðhorf eru kannski eðlileg miðað við að sjónvarpsstöðvar um allan heim sýna stöðugt myndir af spúandi eldfjalli, svörtum hestum og kindum og fólki að moka ösku,“ sagði Ágúst í gær. „Þegar ég segi fólki frá því að ferð með skemmtiferðaskipi til Íslands sé fullkomlega örugg og nú sé virkilega eitthvað nýtt og spennandi að skoða þá tekur fólk slíku vel, en það er mikið verk framundan fyrir okkur í ferðaþjónustunni að leiðrétta þessa vitleysu alla.“
Hann segist þegar þekkja dæmi um að ferðalangar velji frekar skemmtiferðaskip en flugvélar vegna eldgossins. Til dæmis sé fullbókað í allar ferðir Queen Mary milli New York og Southampton í sumar. Vonandi takist eins vel að selja í Íslandsferðirnar.
Viðskiptin margra hagur
Niðurstöður könnunar meðal farþega sem komu með skemmtiferðaskipum til Reykjavíkur, Akureyrar og Seyðisfjarðar í fyrra sýna að á þessum þremur stöðum versluðu farþegar og áhafnir fyrir samtals um 2,5 milljarða króna og er þá meðtalið það sem greitt var fyrir skoðunarferðir. Algengt er að farþegi eyði hér á landi um þrettán þúsund krónum í verslun að meðaltali. Áhafnir sem versluðu á Akureyri og Seyðisfirði eyddu um 1200-1500 krónum á mann að meðaltali, en í Reykjavík var þessi upphæð um 27 þúsund krónur.Tekjur af farþegum skemmtiferðaskipa eru þó talsvert meiri því könnunin náði ekki til farþega sem komu með skipum til Ísafjarðar, Húsavíkur, Grundarfjarðar, Vestmannaeyja og Hafnarfjarðar. Gísli Gíslason, formaður Hafnasambands Íslands, sagðist í gær ætla að tekjur af verslun á öllum stöðunum hefðu verið nálægt 3,5 milljörðum króna á síðasta ári.
Til viðbótar koma tekjur til hafnanna, tekjur ríkisins af innheimtu vitagjalds og umboðsmenn skipanna fá umboðslaun. Mörg skipanna kaupa kost, olíu og ýmsa þjónustu.
Umfram vonir
Spurt var um viðhorf farþega til ýmissa þátta sem snerta almenna upplifun þeirra af heimsókninni til staðanna þriggja. Í ljós kom að yfirgnæfandi fjöldi farþega var þeirrar skoðunar að heimsóknin hefði farið fram úr væntingum.Ein spurninganna snerist um verðlag. Farþegar og áhafnir reyndust „tiltölulega ánægðar“ með verðlagið með þeirri undantekningu að áhafnir sem komu til Seyðisfjarðar voru „ekki alveg nógu ánægðar“. Spurt var um ánægju með skipulagðar skoðunarferðir, kurteisi og viðmót starfsfólks og vinsemd heimamanna. Svörin fyrir alla þrjá staðina voru: „Mjög ánægður.“
Einnig var spurt hvort viðkomandi myndi heimsækja staðinn aftur og þá sem flugfarþegi. Farþegar töldu það ekki líklegt, en áhafnir töldu það ýmist nokkuð eða mjög líklegt.




































