Þórunn þingflokksformaður Samfylkingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir.
Þórunn Sveinbjarnardóttir.

Þórunn Sveinbjarnardóttir var á þingflokksfundi í dag kjörin formaður þingflokks Samfylkingarinnar. Varaformaður var kjörinn Skúli Helgason og ritari var kjörin Jónína Rós Guðmundsdóttir. Steinunn Valdís Óskarsdóttir tilkynnti í dag að hún sæktist ekki eftir endurkjöri sem formaður þingflokksins. Í samtali við Sjónvarpið sagði Steinunn Valdís ástæðuna ekki vera umfjöllun um styrkveitingar til hennar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert