„Aðal refurinn á þingi“

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Reuters

Dregin er upp svipmynd af Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra í ritinu European Voice undir yfirskriftinni „Explosive politician“, sem mætti útleggja sem „Sprengifimur stjórnmálamaður“. Þar kemur m.a. fram að Evrópusinninn Össur sé einn af lykilmönnum í íslenskri pólitík um þessar mundir.

Bjarni Brynjólfsson skrifar greinina þar sem stiklað er á stóru. Rætt er við félaga Össurar í Samfylkingunni, aðra þingmenn sem og andstæðinga í pólitíkinni. Honum er m.a. lýst sem óútreiknanlegum, blaðurskjóðu og líminu sem heldur ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna saman.

Einnig er rætt við Magnús Skarphéðinsson, bróður Össurar, sem segir að Össur sé nú „aðal refurinn á Alþingi“. Að sögn Magnúsar er þörf á ref til að gæta allra kattanna á þingi, en hann er að vísa til frægra ummæla Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Þar líkti hún flokksmönnum VG við ketti sem væri erfitt að hafa hemil á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert