Gæsluvarðhald í vændismáli framlengt
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að gæsluvarðhald yfir konu, sem grunuð er um mansal og vændisstarfsemi, verði framlengt til 4. júní. Héraðsdómur hafði áður fallist á kröfu lögreglu um að framlengja gæsluvarðhaldið til 21. maí en Hæstiréttur stytti þann tíma.
Konan, sem heitir Catalina Mikue Ncogo, var 1. desember dæmd í 2½ árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness fyrir innflutning fíkniefna og hagnýtingu vændis. Catalina hefur áfrýjað þeim dómi til Hæstaréttar. Tveimur dögum síðar var Catalina handtekin vegna gruns um mansal og hagnýtingu vændis en lögreglan taldi sig hafa rökstuddan grun um að Catalina flytti stúlkur til landsins, gerði þær út til vændis og tæki a.m.k. helming hagnaðarins af þeim.
Lögregla segir, að við rannsókn málsins hafi konur borið um að hafa stundað vændi hér á landi á vegum Catalinu og að þær hafi komið til landsins í því skyni. Konunum beri saman um að Catalina hafi verið umráðamaður þess húsnæðis, sem þær dvöldu í og vændið væri stundað í, haft alla milligöngu við þá, sem keyptu vændisþjónustu og tekið við greiðslu og haldið eftir verulegum hluta þess sem greitt var.
Framkomnir vitnisburðir bendi einnig til þess að Catalina hafi gerst sek um mansal gagnvart sumum þeirra kvenna, sem um ræðir, með því að beita ótilhlýðilegri aðferð, ofbeldi, hótunum um ofbeldi og frelsissviptingu.
Fjármál Catalinu hafi verið til skoðunar hjá lögreglunni samhliða og í tilefni af framangreindri rannsókn. Hafi komið í ljós að helsta tekjulind hennar hafi verið umrædd vændisstarfsemi.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. júlí 2010, Innlent 15 mánaða fangelsi fyrir vændi
- Fimmtudagur, 3. júní 2010, Innlent Dómur yfir Catalinu þyngdur
- Þriðjudagur, 15. desember 2009, Innlent Gæsluvarðhald staðfest yfir Catalinu
- Þriðjudagur, 8. desember 2009, Innlent Gæsluvarðhald vegna gruns um mansal staðfest
- Föstudagur, 9. apríl 2010, Innlent Áfram í gæsluvarðhaldi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































