Bauð Richard Branson til Íslands
Richard Branson Reuters
Fyrirtækin sem tóku þátt eru:
Sæbýli. Vinnur að því að setja upp fiskeldi sem nýtir afgangsvarma frá Reykjanesvirkjun.
Gagarín. Margmiðlunarfyrirtæki.
Prentsmiðjan Oddi. Sérhæfir sig í umhverfisvænum umbúðum fyrir sjávarútveg.
Beitir. Framleiðir búnað til nota við línuveiðar sem skilar verðmætari fiski.
Gogoyoko. Fyrirtækið markaðssetur tónlist á vefnum beint frá listamönnunum.
Já. Áhersla á nýjar lausnir við markaðssetningu og leit á vefnum.
Projekt. Markaðssetning og umbúðahönnun.
Marorka. Framleiðir og selur orkustjórnunarkerfi fyrir skip.
Lipid Pharmacheuticals. Vinnur lyf úr lýsisafurðum.
Íslenska sendinefndin tók þátt í ráðstefnunni Gulltaggen þar sem fjallað var um nýjungar í gagnvirkum samskiptum og upplýsingamiðlun. Fulltrúar fyrirtækjanna tóku þátt í vinnufundum, fyrirlestrum og almennri tengslamyndun ásamt því að fyrirtækið Gagarín stóð fyrir vinnustofu þar sem m.a. var kynnt starfsemi fyrirtækisins, samkvæmt fréttatilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu.
Iðnaðarráðherra hélt jafnframt erindi á ráðstefnunni Sustainable and Rewarding Innovation, sem skipulögð var af norrænu nýsköpunarmiðstöðinni og DnB NOR. Frumkvöðullinn Richard Branson og norski ráðherrann, Trond Giske, voru einnig meðal þátttakenda.
„Í kjölfar ráðstefnunnar áttu Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra og Richard Branson, stofnandi Virgin samsteypunnar, góðan fund þar sem iðnaðarráðherra ítrekaði boð sitt um heimsókn til Íslands en í erindi sínu á ráðstefnunni bauð ráðherra Richard Branson til Íslands á komandi sumri.
Eins og ráðherra sagði í erindi sínu: „ Ég vil nota þetta tækifæri til að bjóða þér, hr. Branson, til Íslands í sumar. Ekki eingöngu vegna áhuga þíns á flugfélögum heldur einnig til að kynna þér hvernig mjög svo breytilegt landslag Íslands getur aukið sköpunargleðina í Virgin Galactic verkefninu sem er annars mjög spennandi verkefni.
Árin 1965 og 1967 valdi NASA tiltölulega ung og gróf hraunsvæði á Íslandi og íslenska hálendiseyðimörk til undirbúnings og þjálfunar fyrir geimfarana sem áttu að ganga á tunglinu í fyrsta sinn. Nasa horfði helst til Öskju þegar verið var að skipuleggja ferðir í jarðfræðilegu tilliti, staður sem þekktur er fyrir sprengigos. Hvað væri meira við hæfi í undirbúningi fyrir framtíðar ævintýri, ferðalög út í geim, en að feta í fótspor brautryðjenda og undirbúa tunglgöngu á Ísland,“ segir í fréttatilkynningunni.
Virgin Galactic, geimfyrirtæki Richard Branson hyggst bjóða upp á farþegaflug út í geim á komandi árum.




































