Tryggingasvik kosta þrjá milljarða ári

Viðskiptavinir tryggingafélaganna þurfa að greiða hærri iðgjöld vegna tryggingasvika
Viðskiptavinir tryggingafélaganna þurfa að greiða hærri iðgjöld vegna tryggingasvika mbl.is/Golli

Ný könnun Capacent Gallup fyrir Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) sýnir að meira en helmingur landsmanna er tilbúinn að tilkynna um vátryggingasvik ef hægt er að gera það nafnlaust. Gera má ráð fyrir að kostnaður vegna vátryggingasvika á Íslandi sé ekki undir þremur milljörðum króna á hverju ári en sá kostnaður lendir að lokum á viðskiptavinum tryggingafélaganna sem þurfa að greiða fyrir svikin með hærri iðgjöldum.

Vátryggingafélag Íslands hefur komið upp tilkynningasíðu á vef félagsins þar sem hægt er að láta vita nafnlaust um meint vátryggingasvik en ný könnun Capacent Gallup fyrir Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) sýnir að meira en helmingur landsmanna er tilbúinn að tilkynna um slík svik, ef hægt er að gera það nafnlaust.

Í fréttatilkynningu frá VÍS kemur fram að vátryggingasvik kosta íslenskt samfélag verulegar fjárhæðir en ætla má að um 10-15% af greiddum tryggingabótum sé vegna vátryggingasvika.

„Við hjá VÍS viljum leggja okkar að mörkum til að draga úr vátryggingasvikum, til hagsbóta fyrir bæði viðskipavini, félagið sjálft og samfélagið í heild. Því hefur verið skerpt enn frekar á stefnu félagsins varðandi vátryggingasvik,“ segir Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS, í fréttatilkynningu.

Niðurstaða nýrrar könnunar Capacent Gallup fyrir Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), um að þriðji hver Íslendingur þekki einhvern sem stundað hafi vátryggingasvik, er sláandi að mati forstjóra VÍS og ekki seinna vænna að grípa til aðgerða.

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert