Yfir tuttugu milljónir í hjálparstarf á Haítí

Frá búðum heimilislausra í Port au Prince
Frá búðum heimilislausra í Port au Prince

Hjálparstarf kirkjunnar hefur safnað tæplega 21 milljón króna til uppbyggingar á Haítí í kjölfar jarðskjálftans sem reið yfir landið fyrr á árinu. Þar af söfnuðust 12,3 milljónir króna í páskasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir Haíti.

„Með 5,5 milljónum króna sem söfnuðust strax eftir skjálftann og þriggja milljóna króna framlagi frá utanríkisráðuneytinu er heildarupphæðin sem safnast hefur hjá Hjálparstarfinu til hjálpar- og uppbyggingarstarfa á vegum ACT Alliance, Alþjóðahjálparstarfs kirkna, á Haítí tæplega 21 milljón króna“ segir Jónas Þórisson framkvæmdastjóri Hjálparstarfsins, í fréttatilkynningu.

Mikil áhersla er á að koma þaki yfir fólk. ACT Alliance segir 90% af 1,5 milljónum heimilislausra í landinu hafa fengið nauðsynlegt byggingarefni til að koma sér upp húsnæði til bráðabirgða. M.a. hafi 7.400 hektarar norðan við höfuðborgina Port-au-Prince verið opnaðir þeim sem þurfa að koma sér upp tímabundnu húsnæði. ACT hefur dreift dýnum og nauðsynlegum heimilisbúnaði til tugþúsunda fjölskyldna, reist 5000 salerni í 651 búðum heimilislausra í Port-au-Prince, Jacmel, Gressier, Leogane og víðar. ACT-aðilar dreifa um 100.000 lítrum af vatni á dag og 4000 fjölskyldur hafa fengið sáðkorn, samkvæmt tilkynningu.

Reikningsnúmer söfnunarinnar er 0334-26-886 kt. 450670-0499. Enn er hægt að greiða valgreiðslur í heimabanka en þær falla út 17. maí.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert