Lokun hættusvæða enn í gildi
Minnt er á að lokanir sem ákveðnar hafa verið eru enn í fullu gildi samanber kort gefið út 27. apríl 2010. Kort/Almannavarnir
Þó svo náttúruhamfarir við Eyjafjallajökul séu mikið sjónarspil sem áhugavert er að skoða er ástæða til að árétta þær hættur sem því geta fylgt. Minnt er á að lokanir sem ákveðnar hafa verið eru enn í fullu gildi, að því segir í tilkynningu frá Almannavörnum.
Undanfarið hefur verið töluverð ásókn í að komast inn á lokuð hættusvæði í grennd við gosstöðvarnar í Eyjafjallajökli. Ekki er vitað með vissu hvaða áhrif umbrotin hafa haft á jökulinn sjálfan. Sprungur geta hafa myndast og vitað er um að minnsta kosti eina vatnsrás, um 50 metra djúpa á sunnanverðum jöklinum.
Nú líður senn að því að jökulhaftið milli gígsins á toppi fjallsins og Gígjökuls bresti. Við það munu eitraðar lofttegundir s.s. koltvísýringur og brennisteinsvetni eiga greiðari leið niður Gígjökul og út á eyrarnar framan við jökulinn.
Í eldgosum sem þessu kemur fyrir að gusthlaup fara niður farvegi eins og Gígjökul, þetta er þó ekki algengt. Gusthlaup verða þegar blanda af gasi og fínkorna bergryki mynda lága bólstra yfir gjósandi gígum eða þegar aska hrynur úr ofhlöðnum gosmekki. Gusthlaup fara undan halla og fara hratt yfir svo ástæða er til að forðast hugsanlega farvegi þeirra.
Sprengivirkni aukist undanfarna daga
Í minnisblaði Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands og Veður stofu Íslands segir að sprengivirkni sé kröftug og dökkur mökkur stígi upp af gosstöðvum. Hraun rennur til norðurs og stíga bláleitar gufur upp af hrauninu. Ratsjármyndir frá Landhelgisgæslunni sýna stækkandi rásir í Gígjökli og áframhaldandi upphleðslu á gíg.
„Virkni er mikil, gjóskuframleiðsla og sprengivirkni hefur aukist undanfarna daga en er þó miklu minni en upphafsdaga goss. Óróinn hefur þó dottið niður. Ekkert bendir til þess að gosi sé að ljúka,“ segir í minnisblaðinu.
Mynd tekin úr vefmyndavél Vodafone á fimmta tímanum í dag. Ljósmynd/Vodafone.is/eldgos
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 5. maí 2010, Innlent Enn mikil virkni í jöklinum
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Vill rýmra aðgengi að gosinu
- Föstudagur, 7. maí 2010, Innlent Ekkert bendir til gosloka
- Þriðjudagur, 11. maí 2010, Innlent Gosvirknin helst stöðug
- Laugardagur, 8. maí 2010, Innlent Fjórðungur íbúa farinn úr Vík
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































