Eftirfylgni Íslands óviðunandi

Íslands stendur sig illa við að innleiða tilmæli í baráttunni gegn spillingu

Íslands stendur sig illa við að innleiða tilmæli í baráttunni gegn spillingu mbl.is

GRECO, ríkjahópur Evrópuráðsins gegn spillingu, hefur birt skýrslu um það hvernig tilmælum hópsins, sem fram komu í 3. úttekt hans um Ísland, hafi verið framfylgt af hálfu íslenskra stjórnvalda. Tilmælin, sem sett voru fram árið 2008, varða annars vegar innleiðingu á mútuákvæðum Evrópuráðssamnings gegn spillingu á sviði refsiréttar og hins vegar gagnsæi fjármögnunar stjórnmálastarfsemi á Íslandi. Niðurstaða ríkjahópsins er sú að Ísland hafi ekki uppfyllt nema ein tilmæli hópsins af fimmtán að fullu og sé það almennt óviðunandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Af framangreindum tilmælum GRECO teljast ein tilmæli að auki uppfyllt að hluta til en þrettán töldust ekki hafa verið uppfyllt.

Íslensk stjórnvöld hafa með hliðsjón af þessari niðurstöðu m.a. falið refsiréttarnefnd að vinna frumvarp sem miði að því að uppfylla þau tilmæli sem fram koma og varða ákvæði almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Hefur nefndinni verið falið að tryggja að ákvæði um mútubrot í almennum hegningarlögum nái einnig til alþingismanna, meðlima erlendra fulltrúaþinga sem hafa stjórnsýslu með höndum og erlendra gerðardómsmanna og kviðdómenda. Þá var nefndinni falið að taka til sérstakrar skoðunar þann refsiramma sem mælt er fyrir um í 264. gr. a laganna og varðar mútur í almennri atvinnustarfsemi.

„Jafnframt hefur verið sent erindi til embættis ríkislögreglustjóra og þess óskað að embættið sjái um, í samvinnu við Lögregluskóla ríkisins, að skipuleggja námskeið um meðferð spillingarbrota, með stuðningi dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins. Þá er miðað við að þegar endanlega verður gengið frá siðareglum fyrir ráðherra og stjórnsýslu ríkisins, sbr. fyrirliggjandi frumvarp forsætisráðherra þar sem lagður er lagalegur grundvöllur að slíkum reglum, verði tilmæli GRECO höfð í huga varðandi reglur um viðeigandi og óviðeigandi gjafir til opinberra aðila.

Auk þess hefur verið lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 162/2006, um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra, en frumvarpið er flutt sameiginlega af forystumönnum þeirra stjórnmálasamtaka sem fulltrúa eiga á Alþingi, að Hreyfingunni frátalinni.

Er frumvarpið afrakstur endurskoðunar af hálfu nefndar sem forsætisráðherra, skipaði í maí 2009 þar sem sæti áttu fulltrúar allra stjórnmálaflokka á Alþingi, auk fulltrúa Frjálslynda flokksins. Við endurskoðun laganna var höfð hliðsjón af og brugðist við þeim tilmælum GRECO sem lúta að gagnsæi fjárframlaga til stjórnmálasamtaka hér á landi," segir í fréttatilkynningu.

Hefur íslenskum stjórnvöldum verið boðið að veita frekari upplýsingar um eftirfylgni tilmælanna fyrir 30. september 2010.

Sjá skýrslu GRECO

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Skafrenningur á Austurlandi

19:03 Hríð á flestum fjallvegum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Gera má ráð fyrir þéttri ofankomu og skafrenningi austanlands fram á nótt s.s. á Oddsskarði og Fjarðarheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. Meira »
Aratúnið Málið spratt upp eftir skrif um Aratúnsfjölskylduna á bloggsíðu.

Leitar hjálpar vegna Aratúns-dóms

18:33 „Þetta er klárlega prófmál og mun hafa áhrif á önnur mál í framtíðinni þar sem einhver er ósáttur við ummæli á netinu," segir Andrés Helgi Valgarðsson, sem tapaði í vetur meiðyrðamáli vegna s.k. Aratúnsmáls. Andrés hyggst áfrýja til Hæstaréttar en ræður illa við málskostnaðinn og leitar eftir aðstoð Meira »

Fundaði með fulltrúum sveitarfélaga

Jóhanna Sigurðardóttir
19:01 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, fundaði í dag með fulltrúum forsvarsmanna landhlutasamtaka sveitarfélaga. Ræddi hún á fundinum um hvaða kostir eru í stöðunni varðandi verkefni á landsbyggðinni. Meira »

Unglingspilts enn leitað

Guðmundur Árnason.
18:19 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar lýsingu eftir Guðmundi Árnasyni, sem hvarf er hann var á ferð í Kópavogi þann 17. febrúar sl. Meira »

Fær frest til þriðjudags

Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
17:44 Stjórn Fjármálaeftirlitsins hefur samþykkt að veita Gunnari Andersen, forstjóra FME, lengri frest til þess að andmæla fyrirhugaðri uppsögn. Aðalsteinn Leifsson, stjórnarformaður FME, segir að Gunnar fái frest til klukkan 16 næstkomandi þriðjudags. Meira »

Vilja lækka olíugjald

18:32 Þingmenn Sjálfstæðisflokksins leggja í dag fram frumvarp til laga þar sem lagt er til að olíugjald verði lækkað umtalsvert.  Meira »

Ósáttur við að vera þjófkenndur

Frá Landmannalaugum - mynd úr safni
18:17 Guðmundur Gústafsson, einn þeirra sem var í hópi jeppamanna í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum um helgina, er afar ósáttur við að hópurinn sé þjófkenndur en gps-staðsetningartæki var stolið í skálunum um helgina. Meira »

Verslunarstjóri dæmdur fyrir umboðssvik

BYKO.
16:37 Hæstiréttur dæmdi í dag fyrrverandi verslunarstjóra BYKO á Selfossi í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að umboðssvik. Maðurinn var talinn hafa komið því til leiðar að fyrirtækið 5x fékk afhentar vörur frá versluninni árið 2007 án þess að staðgreiða þær. Meira »

„Enginn greiði gerður með þessu klúðri“

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
16:37 „Það er öllum að verða augljóst að málsmeðferð þessa máls er klúður,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu sinni í dag um afgreiðslu Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Lýsa eftir ræningja

Spilakassar.
16:30 Lögreglan á Akureyri óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á manni sem framdi rán í Fjölumboðinu við Geislagötu á Akureyri í hádeginu í dag. Um er að ræða spilastað Gullnámunnar. Maðurinn komst af vettvangi með eitthvað af fjármunum úr sjóðsvél staðarins. Meira »

Leiga í félagslegu húsnæði hækkaði um 28%

16:32 Verð á húsaleigu fyrir félagslegar íbúðir hækkaði um 28,6% á tímabilinu 2007 til 2011. 14.055 fengu húsaleigubætur á síðasta ári og 3.756 fengu sérstakar húsaleigubætur. Þetta kemur fram í svari velferðarráðherra við fyrirspurn Birkis Jóns Jónssonar alþingismanns. Meira »

Svartir sauðir á hálendinu

Landmannalaugar
16:27 Stjórn Ferðafélags Íslands íhugar að loka öllum skálum félagsins yfir vetrartímann vegna slæmrar umgengni í þeim. Um liðna helgi voru þrír hópar í skála Ferðafélagsins í Landmannalaugum og var lítill svefnfriður í skálanum vegna skrílsláta eins hópsins. Meira »

Mæling á PSA ekki áreiðanleg

Krabbameinsrannsóknir.
16:16 Mæling á PSA-mótefni í blóði gefur ekki nægilega áreiðanlegar upplýsingar til að hægt sé að mæla með aðferðinni til skimunar eftir krabbameini í blöðruhálskirtli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landlækni. Meira »

Icesave hefði sett Ísland á hausinn

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
16:00 Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlausson, sagði á Alþingi í dag að skýrsla Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um afföll íbúðarlána og kostnað við niðurfærslu lána staðfesti það, væru forsendur hennar réttar, að ef Icesave-samningarnir sem ríkisstjórnin hefði reynt að koma í gegn hefðu verið samþykktir hefði það leitt til gjaldþrots íslenska ríkisins. Meira »

Ítarlegar upplýsingar um húsaleiguverð

15:46 Þjóðskrá Íslands birtir í fyrsta sinn á morgun upplýsingar um húsaleigu eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu. Um samstarfsverkefni Þjóðskrár og Íbúðalánasjóðs er að ræða en sjóðurinn á 700 leiguíbúðir. Meira »

Vilja starfshóp um póstverslun

Íslandspóstur.
16:03 Ellefu þingmenn úr fjórum flokkum hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að fela forsætisráðherra að setja á fót starfshóp sem athugi þróun og regluverk í póstverslun hér og erlendis og geri tillögur um lagabreytingar og aðrar ráðstafanir til að skapa póstverslun viðeigandi samkeppnisstöðu. Meira »

Tíðinda að vænta innan tíu daga

Huang Nubo
15:49 „Ég vona að við munum hafa einhver tíðindi innan tíu daga,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, spurður um mögulegar fjárfestingar kínverska fjárfestisins Huang Nubo á Norðausturlandi. Hann bætir við að rík áhersla sé lögð á að sem mest sátt náist um málið. Meira »

Lagði mat á vegslóða

Utanvegaakstur er vaxandi vandamál.
15:33 Akstur utan óskilgreindra vega er alvarlegt vandamál hér á landi. Til hefur orðið víðáttumikið kerfi vegslóða án þess að farið hafi verið eftir skipulagsferlum. Gísli Rafn Guðmundsson, nemandi við Landbúnaðarháskóla Íslands vann síðastliðið sumar verkefni sem ber heitið „Skipulagsferlar og matsskalar vegna vegslóða“. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Þráðlaus þjófavörn með innbyggðum GSM
Fyrir heimilið eða sumarbústaðinn. Kerfið kemur tilbúið til notkunar með eftirfa...
NUDD!!
GOOD MASSAGE 6948095 ...
Hundalopapeysur í miklu úrvali
Er voffa kalt? Mikið úrval af hundalopapeysum. http://www.facebook.com/voffaprjo...
Hobby 560 Ufe Prestige hjólhýsi 2007 árg
Hobby 560 Ufe Prestige hjólhýsi, keypt nýtt í maí 2007. Ýmsir aukahlutir fylgja ...
 
Starfsfólk óskast
Ræstingar
Starfsfólk óskast Hreint ehf. óskar efti...
Sýslumaðurinn í kópavogi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Samkoma sunnudag - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimili Grensáskirkju Sunnu...
Aðalfundur kjördæmisráðs suðvesturkjördæmis sjálfstæðisflokksins

Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksinsí Suður...