Getur sparað fé til skamms tíma
Frumtök, samtök frumlyfjaframleiðenda, telja að með þeirri reglugerðarbreytingu sem heilbrigðisráðherra hefur skrifað undir varðandi lyf fyrir sjúkrastofnanir, þá geti sparast fé til skamms tíma, mögulega um 1% af því sem áætlað er í fjárveitingu vegna S-merktra lyfja í ár. Slíkur árangur verður þó til lítils ef kostnaður vegna reglugerðarbreytingarinnar eykst annarsstaðar eða síðar og að lyfjaöryggi verði stefnt í voða.
Á mbl.is í dag er vísað í fréttatilkynningu heilbrigðisráðuneytisins frá því í dag þar sem fram kemur að Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, hafi undirritað reglugerðarbreytingu sem ætlað er að draga úr lyfjakostnaði ríksins vegna S-merktra lyfja.
„Af hálfu Frumtaka og okkar aðildarfyrirtækja ríkir mikill skilningur á stöðu ríkissjóðs í þeim efnahagsþrengingum sem uppi eru og þá um leið á nauðsyn þess að leita mögulegra leiða til að ná niður kostnaði. Rétt er að ganga fram með það að markmiði að ná fram raunverulegum sparnaði, þ.e. að sparnaður á einu sviði hins opinbera verði ekki til þess að til falli kostnaður, og það jafnvel meiri, annars staðar. Mikilvægt er, nú sem endranær, að huga að hagsmunum sjúklinga sem frekast er unnt. Til þess að gæta hagsmuna sjúklinga er farsælla að þeir sem að koma að lyfjamarkaði á Íslandi vinni að sameiginlegri lausn.
Frumtök telja að með reglugerðarbreytingunni nú geti sparast fé til skamms tíma, mögulega um 1% af því sem áætlað er í fjárveitingu vegna S-merktra lyfja í ár. Slíkur árangur verður þó til lítils ef kostnaður vegna reglugerðarbreytingarinnar eykst annarsstaðar eða síðar og að lyfjaöryggi verði stefnt í voða," segir í upplýsingum frá Frumtökum.
Íslenskur lyfjamarkaður er örmarkaður sem þó um leið lýtur öllum þeim sömu lögmálum, sem og þeim ítarlegu lögum og reglum sem í gildi eru í öðrum Evrópuríkjum, samkvæmt upplýsingum frá Frumtökum.
„En smáum markaði fylgja ýmsir vankantar sem einir og sér leiða af sér hærri kostnað, færri lyfjaefni og mögulega afskráningar. Í þessu samhengi er vert að minna á skýrslu sem unnin var að undirlagi forstjóra Lyfjastofnana í Evrópu. Forstjóri hinnar íslensku Lyfjastofnunar kom sérstaklega að þessari vinnu og hefur margsinnis rætt um nauðsyn þess að taka tillit til og fjalla frekar um vandkvæði smárra markaða.
Aðildarfyrirtæki Frumtaka hafa starfað á hinum íslenska markaði um langa tíð og skilja vel sérstöðu hans og smæð. Stjórnvöld verða að gera slíkt hið sama. Því er mikilvægt að stjórnvöld meti að verðleikum þann árangur sem náðst hefur í lækkun á lyfjaverði í heildsölu á undanförnum árum og að frekari kröfur um breytingar verði settar í bæði raunhæft og sanngjarnt samhengi en reglugerðarbreyting ráðuneytisins er ekki vísbending um slíkt.
Sú staðreynd að íslenski markaðurinn njóti sama verðs á lyfjum og markaðir sem eru 15 – 30 sinnum stærri er í sjálfu sér fréttnæm. Viðskipti með lyf eru ekki frábrugðin öðrum viðskiptum hvað það varðar að þau á endanum ráðast af arðsemi (nema í tilfellum þar sem aðstoð við þróunarríki á í hlut). Það að gera kröfu um að verð á lyfjum á Íslandi skuli vera lægra en á mörkuðum sem eru margfalt stærri getur hvorki talist réttmæt né sanngjörn krafa. Slíkar einhliða kröfur geta haft mikil áhrif og orðið til þess að dragi úr skráningum nýrra lyfja en einnig getur afskráningum fjölgað þar sem áhrif slíkra krafna ná langt út fyrir landsteinana.
Fyrir liggur að í fjárlögum ársins í ár er gert ráð fyrir rúmlega 4,9 milljarða kr. fjárveitingu vegna S-merktra lyfja. Miðað við þær forsendur sem fyrir liggja, svo sem samninga um verð og útboð, og raunsölu það sem af er ári, eru allar líkur til þess að útgjöld ríkissjóðs vegna S-merktra lyfja verði vel innan þess ramma sem fjárlög setja. Reglugerðarbreytingin er sérkennileg í ljósi þess að líta má svo á að skammtíma sparnaður hafi verið tekin fram yfir stöðugleika," samkvæmt upplýsingum frá Frumtökum.




































