Oddvitar takast á

Oddvitar stjórnmálaflokkanna sem bjóða sig fram í komandi borgarstjórnarkosningum takast nú á á opnum hádegisfundi, sem fram fer í Háskólanum í Reykjavík. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinni útsendingu á mbl.is.

Frambjóðendur munu halda stutt erindi og svara spurningum úr sal. Fundurinn hefst klukkan 12 og stendur til klukkan 13. 

Þátttakendur eru þau:

  • Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar
  • Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins
  • Einar Skúlason, oddviti Framsóknarflokksins
  • Helga Þórðardóttir, oddviti Frjálslynda flokksins
  • Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins
  • Ólafur F. Magnússon, oddviti H-listans
  • Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri grænna
  • Baldvin Jónsson, oddviti Reykjavíkurframboðsins
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert