Gæsluvarðhald staðfest
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að karlmaður sæti gæsluvarðhaldi til 16. maí. Maðurinn er grunaður um aðild að sérstaklega hættulegri líkamsárás, frelsissviptingu, þjófnuðum og fjárkúgun.
Um er að ræða mann, sem var handtekinn í apríl ásamt fimm öðrum. Málið hófst 9. apríl þegar lögregla var kvödd á vettvang vegna þjófnaðar á verkfærakistu sem eigandinn hafði lagt frá sér á bílastæði við leikskóla í Reykjanesbæ. Til þjófanna sást og bíls, sem þeir voru í og tókst lögreglu að finna bílinn skömmu síðar ásamt þýfinu.
Við rannsókn þjófnaðarmálsins komu fram upplýsingar um að einn þátttakenda hefði verið numinn á brott með valdi frá heimili sínu nóttina áður, haldið nauðugum í heimahúsi um nóttina og sætt þar hótunum, ýmsum líkamsmeiðingum og pyntingum af hálfu hinna mannanna fimm. Manninum var haldið áfram nauðugum fram eftir degi og var meðal annars þvingaður til að stela fyrrgreindri verkfærakistu. Ástæðan er talin hafa verið innheimta á fíkniefnaskuld.
Í úrskurði héraðsdóms um gæsluvarðhald kemur fram, að maðurinn sé grunaður um fjölda innbrota en undanfarið hafi mikil innbrotahrina gengið yfir á Suðurnesjum. Hefur lögreglan lagt hald á fjölda muna, sem talinn er þýfi.
Þá kemur fram, að maðurinn hafi sagt í yfirheyrslum við lögreglu, að hann ætli að drepa manninn, sem neyddur var til að stela hjólbörunum. Sakborningurinn hefur tvisvar sinnum verið dæmdur fyrir mjög alvarleg ofbeldisbrot og á nú yfir höfði sér allt að 16 ára fangelsisdóm.
Innlent »
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 2. júní 2010, Innlent Ofbeldismaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Þriðjudagur, 8. febrúar 2011, Innlent Varðhald vegna árásar framlengt
- Miðvikudagur, 1. júní 2011, Innlent Árásarmenn áfram í fangelsi
- Mánudagur, 11. maí 2009, Innlent Í gæsluvarðhaldi vegna síbrota
- Miðvikudagur, 2. febrúar 2011, Innlent Þarf að afplána eftirstöðvar refsingar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































