Sofnaði undir stýri

mbl.is/Júlíus

Kona á miðjum aldri og sonur hennar sluppu lítið meidd þegar bifreið þeirra valt við bæinn Tungulæk vestan við Borgarnes um kl. 9 í morgun. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi sofnaði konan undir stýri.

Lögreglan segir að hún hafi ekki verið á miklum hraða. Bæði konan og sonur hennar voru í bílbeltum. Þau voru flutt á slysadeild til skoðunar, en sem fyrr segir eru meiðsl þeirra minniháttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert