Kannast ekki við handstýringu

Halldór Ásgrímsson stækka

Halldór Ásgrímsson mbl.is/Eyþór Árnason

Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi ráðherra og formaður Framsóknarflokksins, kannast ekki við að sölu bankanna hafi verið handstýrt og að vísbendingar um slíkt, sem fram komi í rannsóknarskýrslu Alþingis, sé hann fyrst að heyra af núna. Þetta kom fram í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins, en rætt verður við Halldór í Kastljósinu. 

Í viðtali við RÚV segir Halldór að gera hefði átt meira strax á fyrrihluta árs 2006 þegar hættumerki sáust vegna stærðar bankanna. „Það var settur af stað nefnd eða starfshópur milli aðila til þess að fylgjast með því. Menn sáu hættuna. Það má kannski segja það eftir á að hyggja að það hefðu menn átt að gera meira strax í því sambandi.“

Að sögn Halldórs var hann alla tíð þeirrar skoðunar að mikilvægt væri að fá erlendan banka inn á íslenskan markað. Segir hann slíkt hafa verið reynt með sænskan banka en án árangurs, hugsanlega vegna klaufaskaps íslenskra stjórnvalda. „Ég er ekki í nokkrum vafa með það að það hefði verið miklu betra ef þetta hefði tekist,“ sagði Halldór.

Kaldbakur betri kaupandi ef verð hefði ráðið

„Ef verð hefði eingöngu ráðið þá hefði raunverulega Samson ekki verið réttur kaupandinn heldur Kaldbakur. Þetta sá maður á sínum tíma. Hins vegar var ráðið alþjóðlegt fjármálafyrirtæki til þess að leggja á ráðin um það hvernig þetta skyldi metið. Og þeir höfðu viðmið af alþjóðlegum reglum og eftir því var farið. Þeirra dómur var ráðandi um það hvaða tilboð var tekið,“ sagði Halldór og bætti síðar í viðtalinu við:

„Það var mat þessa aðila sem lá til grundvallar. Það veit ég. Það man ég og það hefur hvergi verið hrakið. Síðan getur verið að menn hafi haft eitthvað á tilfinningunni í þessu, en menn verða fyrst og fremst að horfa til staðreynda í þessu máli.“

Ráðamenn fylgdu settum reglum við einkavæðingu

Aðspurður vísaði Halldór því alfarið á bug að hann eða Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, hefðu reynt að hafa áhrif á mat þessa virta alþjóðlega fjármálafyrirtækis.

Spurður hvers vegna Steingrímur Ari Arason, sem sagði sig úr einkavæðingarnefnd á sínum tíma, hafi haldið því fram að sölu bankanna hafi verið handstýrt sagðist Halldór ekki skilja það. Tók hann fram að hann hefði aldrei rætt þetta mál við Steingrím Ara, en að greinilegt mætti vera að Steingrímur Ari hafi átt einhvers konar uppgjör við ráðherra Sjálfstæðisflokksins sem   Halldór þekki ekki.

Spurður hvort ekki hafi verið rangt að selja bankana og með þeim hætti sem gert hafi verið vísaði Halldór því á bug. Minnti hann á að ráðamenn hafi starfað eftir þeim reglum sem gilt hafi á sínum tíma og það yrði ávallt að hafa í huga þegar hlutirnir væru metnir eftir á.

Óskandi að eigendur hefði farið betur með vald sitt

Halldór sagði óskandi, að eigendur bankanna hefðu farið betur með það vald sem þeim hafi verið falið og eftirlitið verið betra. Spurður hvort ekki hafi verið óeðlilegt að breyta reglunum um hvernig standa skyldi að einkavæðingu bankanna, eins og fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, vísaði Halldór því á bug að reglunum hafi verið breytt.

Spurður hvort ekki hafi verið óheppilegt að kaupendur stóru bankanna tveggja hafi verið nátengdir flokkunum sem mynduðu ríkisstjórn á sínum tíma segist Halldór ekki líta svo á að þeir hafi verið nátengdir flokkunum. „Menn geta náttúrlega ekki útilokað aðila frá því að koma að íslensku viðskiptalífi og íslensku fjármálalífi vegna þess að þeir hafi einhvern tímann tengst ákveðnum flokkum. Það verður náttúrlega að meta menn og fyrirtæki á þeim grundvelli sem þeir starfa á.“

Mistök að slíta Fjármálaeftirlitið frá Seðlabankanum

Aðspurður sagðist Halldór telja að það hafi verið rétt að veita það aukna frjálsræði  í viðskiptalífinu sem veitt var þegar hann sat í ríkisstjórn á sínum tíma. Spurður hvort ekki hefði þurft að efla eftirlitskerfi á borð við Fjármálaeftirlitið samhliða einkavæðingunni segir Halldór að hérlendis hafi verið eftirlitskerfi, en að það hafi brugðist eins og víða erlendis.

„Það liggur alveg ljóst fyrir að Fjármálaeftirlitið hefur ekki ráðið við það sem það þurfti að ráða við og menn trúðu að það myndi ráða við,“ sagði Halldór og bætti við: „Eftir á að hyggja held ég að það hafi ekki verið rétt að slíta Fjármálaeftirlitið frá Seðlabankanum.“

Segir 90% hámarks íbúðalán ekki hafa verið mistök

Um gagnrýni á hagstjórn ríkisstjórnar Halldórs á sínum tíma og m.a. þeirri ákvörðun að hækka hámark íbúðalána í 90% sagðist Halldór telja að ákvörðun um slíkar lánveitingar hafi verið rétt. Samtímis gagnrýndi hann framferði bankanna á þessum tíma og tilraunir þeirra til þess að ganga að Íbúðarlánasjóði dauðum með gylliboðum.

Halldór vísaði því einnig á bug að skattalækkanir hafi verið vanhugsaðar og skoða yrði hlutina í samhengi. Erfitt væri að dæma hvern hlut út af fyrir sig. „Þegar ég horfi á ríkisfjármál Íslands á árunum 2005-2007 þá var afgangurinn u.þ.b. 5% að meðaltali af þjóðartekjum sem var mjög sambærilegt við það sem var hér á hinum Norðurlöndunum. Þannig að þetta er sú mynd sem menn verða fyrst og fremst að hafa í huga,“ sagði Halldór og bætti síðar við: „Ég er að segja að ríkisfjármál á Íslandi voru í góðu lagi á þessum tíma og afgangur af ríkisfjármálum með því hæsta sem gerðist í Evrópu. Það er það sem er aðallega ráðandi í þessu efni.“

Biðst afsökunar á syndum sínum í kirkju

Aðspurður segist Halldór ekki telja að hann skuldi íslensku þjóðinni afsökunarbeiðni vegna starfa sinna  í aðdraganda bankahrunsins. „Ég hef gert þá hluti sem ég hef staðið að á grundvelli þess sem ég best vissi og á grundvelli minnar samvisku. Og ég get ekki gert betur. Hitt er svo annað mál að menn eru alltaf að biðjast afsökunar á syndum sínum og það geri ég nú í kirkju sem kristinn maður. Því kristin trú og kristin gildi hafa alltaf verið mér mikilvægt veganesti.“ 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Matthías Matthíasson, söngvari.

Fyrstur karla til að lesa stigin

21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »
Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.

Versló brautskráir 311 nemendur

21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Tjaldvagnaleiga
www.123.is/tjaldvagnaleiga...
Úrval af fjarstýrðum þyrlum og m.fl.
Erum með fjarstýrðar þyrlur í miklu úrvali. Netlagerinn slf Dugguvogur 17-19, 2....
SKODA FABIA COMFORT
Skoda Fabia Comfort . Nýskr. 5/2000, ekinn 122 þ.km, bensín,...
Sumarbústaður í sveit www.hrosshagi.com
Til leigu vel búinn bústaður f. 4-6 manns í Biskupstungum. Heitur pottur, gasgri...
 
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Íslandsbanki
Önnur störf
Tækifæri fyrir öfluga sérfræðinga ...