Stal erótískum lögreglubúningum

Lögreglumenn í hefðbundnum lögreglufatnaði.
Lögreglumenn í hefðbundnum lögreglufatnaði. mbl.is

Brotist var inn í verslunina Adam og Evu, sem selur erótískar vörur, við Kleppsveg snemma í morgun. Að sögn lögreglu var undirkjólum og erótískum búningum stolið, m.a. lögreglubúningum.

Ekki liggur fyrir með skemmdir en að sögn lögreglu eru eftirlitsmyndavélar í versluninni og verða myndir úr þeim skoðaðar í dag. 

Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert