Aukafundur í ríkisstjórn
Aukafundur í ríkisstjórn er ráðgerður í dag, til þess að ræða frumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra um breytingar á stjórnarráðinu og fjárlagagerð næstu ára.
Á meðal breytinga sem ráðgerðar eru í frumvarpi Jóhönnu er að láta sjávarútvegsráðuneyti renna inn í nýtt atvinnuvegaráðuneyti og taka frá því sum veigamestu hlutverk þess um leið og færa til umhverfis- og auðlindaráðuneytis eða á nýjan samráðsvettvang ráðuneytanna tveggja, svokallað Nýtingar- og verndarráð sjávarauðlindarinnar, sem mun taka ákvarðanir um nýtingu fiskistofnanna.
Þetta kemur fram í minnisblaði forsætisráðherra sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Svo virðist því sem lítið verði eftir af sjávarútvegsráðuneyti Jóns Bjarnasonar, nái breytingarnar fram að ganga.
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG, sagði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag að þetta liti þannig út að Samfylkingin vildi losna við eina ráðherrann sem væri harður á móti aðild að Evrópusambandinu. Sem kunnugt er eru sjávarútvegsmál langmikilvægasta málefnið í aðildarviðræðum Íslands við ESB og þykja líklegust til að verða ásteytingarsteinn.
Ekki hefur náðst í Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í morgun, en Jón Bjarnason er á ferð um öskufallssvæðin á Suðurlandi. Ekki er því alveg víst hvort hann mætir á ríkissstjórnarfundinn eða ekki. Jón vildi aðspurður ekkert tala um þessi mál en sagði mikilvægt að þjóðin styddi vel við bakið á bændum undir Eyjafjöllum og í héruðum þar fyrir austan.
Jón vísaði alfarið á Jóhönnu þegar spurt var út í breytingarnar sem á að gera á ráðuneyti hans og ekki var að heyra að tillögurnar hefðu verið unnar í miklu samráði við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið sjálft. „Þú verður að spyrja hana. Þetta er hennar mál," sagði Jón. Hann vildi ekkert tjá sig um það hvort honum litist á þá hugmynd að breyta sjávarútvegsráðuneytinu eins og Jóhanna leggur til.
Bloggað um fréttina
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson VG fórnar sjávarútvegi og landbúnaði fyrir ESB aðild -
Jóhann Elíasson KÖLD ERU KVENNA RÁÐ!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! -
-
Ólafur Gíslason Að þykjast vera að gera eitthvað -
-
-
Tryggvi Þórarinsson Afsögn Jóhönnu í dag? -
Axel Jóhann Hallgrímsson Ásmundur, verður stefnumálum VG betur framkomið í stjórn Framsóknar og ... -
Óðinn Þórisson Jóhanna Sigurðardóttir og hennar frumvarp um breytingar -
Kristinn Karl Brynjarsson Bráðum eins árs. -
-
Stefán Friðrik Stefánsson Jóhanna reynir að sparka Jóni úr ríkisstjórn -
Ægir Óskar Hallgrímsson Stjórnvöld veikja krónuna!!
Innlent »
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 9. maí 2010, Innlent Ríkisstjórnin fundar enn
- Miðvikudagur, 8. september 2010, Innlent Þrír af sex flokksleiðtogum sátu kvöldverðinn
- Þriðjudagur, 21. september 2010, Innlent Mikil reiði innan VG
- Sunnudagur, 28. mars 2010, Innlent VG ræðir ummæli forsætisráðherra
- Þriðjudagur, 6. október 2009, Innlent Hefur trú á að stjórnin lifi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































