Háloftin áfram öskusvört

Öskufallsspá Metoffice sem gildir kl. 12 á hádegi á morgun. …
Öskufallsspá Metoffice sem gildir kl. 12 á hádegi á morgun. Litar breytingar frá síðustu spá.

Samkvæmt öskufallsspá Metoffice fyrir háloftin breiðir askan enn úr sér á Norður-Atlantshafi undir 20 þúsund feta flughæð, og nær einnig ofar í háloftin, allt að 35 þúsund fetum. Meðfylgjandi kort sýnir spána kl. 12 á hádegi á morgun og hefur svæðið lítið breyst frá síðustu spá sem gerð var fyrir tímabilið kringum sex í fyrramálið.

Öskuskýið frá Eyjafjallajökli hefur raskar flugi hér á landi og víðar í Evrópu. Flug á Suður-Grænlandi hefur einnig legið niðri. Ný spá er væntanleg frá Metoffice, sem sýnir þá stöðuna eins og hún verður á hádegi.

Íslensku flugfélögin halda áfram millilandaflugi frá Akureyri fram eftir morgundeginum en vonir standa til að hægt verði að opna Keflavíkurflugvöll annað kvöld eða á þriðjudagsmorgunn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert