Margar tillögur á þjóðfundi

Fjöldi fólks tekur þátt í þjóðfundinum um fátækt í dag. stækka

Fjöldi fólks tekur þátt í þjóðfundinum um fátækt í dag. mbl.is/Árni Sæberg

Þjóðfundinum um fátækt og félagslega einangrun er lokið en um 80 manns tóku þátt í honum. Fjölmargar tillögur komu fram um hvernig ætti að berjast gegn fátækt og hvaða úrræði ættu að vera fyrir þá sem lifa undir fátæktarmörkum.

Var þjóðfundurinn haldinn í tilefni af Evrópuárinu, en helsta markmið þess er að raddir þeirra einstaklinga sem búa við fátækt og félagslega einangrun fái að heyrast.

„Þess vegna ákváðum við að halda fund með þjóðfundarsniði þar sem fólk úr hinum ýmsu hópum samfélagsins sest niður og ræðir á jafnræðisgrundvelli um fátækt, óörugga lífsafkomu og félagslega einangrun og hvaða leiðir séu færar til þess að vinna gegn slíkri stöðu," segir Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, í tilkynningu frá ráðuneytinu, sem stóð fyrir fundinum. Mikilvægt sé að koma á öflugri samræðum og skoðanaskiptum í samfélaginu um þessi mál og tryggja að allar raddir heyrist. „Það er von okkar að fundurinn skili raunhæfum hugmyndum og ábendingum um leiðir sem geti reynst gagnlegar í baráttunni gegn fátækt og félagslegri einangrun á Íslandi."

Nokkur atriði sem komu fram á fundinum

•          Jafnari launakjör með hvetjandi kerfi og auknum vinnumarkaðsúrræðum.

•          Byrja nógu snemma að innræta grunngildi samfélagsins um virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum og umhyggju fyrir samfélaginu.

•          Gefa fólki svigrúm til sjálfsbjargar eftir að það hefur þurft að leita sér aðstoðar.

•          Að jafna lífskjör í samfélaginu með því að allir hafi störf við hæfi, húsnæði og möguleika til að taka þátt í samfélaginu og mótun þess.

•          Komið verði á fót skiptivinnumarkaði og talsmanni bótaþega.

•          Bætt lífskjör til hækkunar lægstu launa skapast með jöfnum tækifærum til atvinnu og menntunar fyrir alla.

•          Efla og standa vörð um velferðarþjónustu og auka félagslega ráðgjöf.

•          Aukin menntun og endurhæfing, efling í hjálparstarfi og á sviði atvinnu- og launamála getur dregið úr fátækt og félagslegri einangrun.

•          Sveigjanleg velferðarþjónusta með skýr framfærsluviðmið öll veitt á einum stað.

•          Öllum þegnum sé tryggð viðurkennd lágmarksframfærsla með atvinnu, mannsæmandi launum og/eða samfélagslegum greiðslum.

•          Sérstök áhersla sé lögð á  barnafjölskyldur og virkni allra í samfélaginu.

•          Velferð skapar verðmæti, félagsleg og efnahagsleg.

•          Samfélagið þarfnast þátttöku allra og ber á móti að veita öllum úrræði við hæfi.

•          Raunhæf, viðurkennd framfærsluviðmið sem öll kerfi fylgja er grundvöllur aðstoðar og fjárhagsviðmiða.

•          Atvinna, menntun, endurmenntun og tækifæri er krafa og grundvöllur lífsgæða og félagslegrar virkni.

•          Efla þarf foreldrafræðslu og stuðning við lítið menntað fólk.

•          Berjast gegn félagslegri einangrun fátækra með:

–          Góðum og gjaldfrjálsum almenningssamgöngum.

–          Gjalfrjálsum menningarviðburðum fyrir börn og fullorðna

–          Samkomustöðum þar sem fólk getur hist, óháð fjárhagsstöðu (melting point for people)

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

21:50 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »
Matthías Matthíasson, söngvari.

Fyrstur karla til að lesa stigin

21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
2-3 herbergja íbúð óskast í Rvk
2-3 herbergja íbúð óskast fyrir tvær reglusamar og rólegar vinkonur, helst í hve...
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
Til sölu Porsche Boxster
Til sölu Porsche Boxster Árgerð: 2000 Ekin: 112 þús Flottur og í góðu ástand...
Sendill
Nissan Vanette 2300 td '98, ekinn 190. Verð= tilboð eða skipti. 7775919...
 
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...