Ósammála skýrslu um verðtryggingu
Viðskiptanefnd Alþingis kallaði til sín viðskiptaráðherra, talsmann neytanda og fulltrúa Hagsmunasamtaka heimilanna á opinn fund í morgun. mbl.is/Ernir Eyjólfsson
Fulltrúar Hagsmunasamtaka heimilanna og talsmaður neytenda gagnrýna skýrslu um verðtryggingu sem gerð var fyrir efnahags- og viðskiptaráðherra. Telja þeir að spyrja hefði átt að því hvernig ætti að afnema verðtrygginguna, eins og fram kemur í stjórnarsáttmálanum, en ekki hvort.
Kom þetta fram á opnun fundi viðskiptanefndar Alþingis um verðtryggingu þar sem Gísli Tryggvason talsmaður neytenda og Friðrik Ó. Friðriksson og Marinó G. Njálsson, talsmenn Hagsmunasamtaka heimilanna, sátu fyrir svörum nefndarmanna. Skýrsla sem Askar capital vann fyrir viðskiptaráðherra var þar meðal annars til umræðu.
Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, lagði til að Hagfræðistofnun Háskóla Íslands yrði falið að gera nýja skýrslu þar sem spurt yrði að því hvernig ætti að afnema verðtrygginguna. Friðrik Ó. Friðriksson tók undir það að þörf væri á frekari rannsókn á málinu.
Gísli Tryggvason efaðist um lögmæti verðtryggingar og lagði til að leitað yrði álits EFTA-dómstólsins á málinu. Hann sagði nauðsynlegt fyrir neytendur að endurgjald fyrir lán væri í einu lagi, gagnsætt, réttlátt og löglegt.
Fulltrúar Hagsmunasamtaka heimilanna sögðu að samtökin vildu að verðtrygging yrði afnumin af neytendalánum. Hvergi annars staðar væri boðið upp á verðtryggð neytendalán. Þeirra vegna mætti verðtrygging vera á öðrum fjárskuldbindingum.
Þeir sögðust styðja hugmyndir um að setja þak á verðtryggingu og færa það niður í áföngum og færa íbúðarlán yfir í óverðtryggt kerfi.
Þeir ítrekuðu einnig tillögur sínar um að leiðrétta forsendubrest vegna hrunsins og láta þakið vera afturvirkt til ársins 2008. Það myndi þýða 16-18% leiðréttingu lána. Friðrik sagði að vandinn væri orðinn svo mikill að ef ekki yrði brugðist við innan örfárra vikna væri mikil hætta á að skaðinn yrði enn meiri.
Innlent »
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 10. maí 2010, Innlent „Yfirheyrsla yfir verðtryggingunni“
- Laugardagur, 13. febrúar 2010, Innlent Vill fund um gengislánin
- Föstudagur, 18. september 2009, Innlent Vilja taka þátt í að móta skuldaúrræði
- Laugardagur, 18. september 2010, Innlent Óskar eftir fundi í viðskiptanefnd
- Miðvikudagur, 30. júní 2010, Innlent Framsóknarmenn vilja fund í þingnefndum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































