Röng frétt um ferðir Ólafs Þórs í DV

Ólafur Þór Hauksson.
Ólafur Þór Hauksson. mbl.is/Golli

Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari er ekki að fara til Bretlands í dag líkt og haldið er fram á vef DV í dag. Samkvæmt upplýsingum frá embætti sérstaks saksóknara er Ólafur Þór að fara til Svíþjóðar þar sem hann situr fund norrænna efnahagsbrotadeilda. Ólafur Þór er síðan væntanlegur til landsins á morgun.

mbl.is birti vísun í frétt DV í morgun enda sagðist vefur DV hafa fengið þetta staðfest hjá Ólafi Þór. mbl.is biðst velvirðingar á því að hafa vísað í frétt DV þar sem fréttin er röng.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert