„Getum ekkert sagt“

Ólafur Þór Hauksson (t.h.), sérstakur saksóknari. stækka

Ólafur Þór Hauksson (t.h.), sérstakur saksóknari. mbl.is/Eggert

„Við getum í raun ekkert sagt,“ sagði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í samtali við mbl.is, spurður út í handtökutilskipun á hendur Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanns Kaupþings.

„Við erum á miðju kafi í umfangsmikilli rannsókn sem er á viðkvæmu stigi,“ segir Ólafur. Ekki sé hægt að gefa upplýsingar um hvort fleiri handtökur séu í farvatninu.

Sigurður var í gær eftirlýstur á heimasíðu Alþjóðalögreglunnar, Interpol að beiðni sérstaks saksóknara. Ólafur Þór vill ekkert tjá sig um málið utan þess að segja að embættið eigi í góðum samskiptum við bresk lögregluyfirvöld. „Við erum í beinum samskiptum við þá menn sem vinna við þessi mál innan Serious Fraud Office. Það getur ekki orðið betra.“

Spurður almennt út í gang rannsóknarinnar segir Ólafur: „Mér sýnist þetta ganga eins og við er að búast. [...] Þetta er svo fljótt að breytast.“ Upplýsingar sem komi fram við skýrslutökur geti leitt rannsakendur á nýjar brautir. Allar áætlanir geti því breyst með skömmum fyrirvara.

Finnur fyrir stuðningi Norðurlandanna

Ólafur Þór væntanlegur heim frá Svíþjóð í dag þar sem hann sat fund með yfirmönnum efnahagsbrotadeilda á Norðurlöndunum. Rætt hafi verið um með hvaða hætti menn geti stutt hver við annan. Ólafur Þór kveðst hafa fundið fyrir mjög jákvæðum viðbrögðum gagnvart þeirri stöðu sem Ísland sé í. Norðurlöndin séu öll reiðbúin að aðstoða Ísland við rannsóknin á efnahagsbrotamálum. „Við finnum fyrir miklum stuðningi,“ segir Ólafur Þór. 

Aðspurður segir hann stuðninginn ekki aðeins vera í orði. „Ríkissaksóknarinn í Noregi kom til Íslands fyrir síðustu áramót, Tor-Aksel [Busch], í kjölfarið kom boð um það að þeir væru boðnir og búnir til að aðstoða okkur. Það er búið að setja plön um að það komi starfsmenn øko-krimi [norsku efnahagsbrotadeildarinnar] yfir til okkar í næsta mánuði,“ segir Ólafur Þór.

Um 30 manns vinna nú við rannsókn málsins, en stefnt er að því að fjölga starfsmönnum töluvert.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »
Matthías Matthíasson, söngvari.

Fyrstur karla til að lesa stigin

21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HONDA CR-V VARAHLUTIR 1998-2001+Hyunday Tuson hedd
Á til notaða varahluti í Honda cr-v 1997-2001 td. drif toppgrind,hedd og margt s...
Til sölu Benzhou vespa
Ég er 50 cc vespa silvurgrá og svört árg. 2010 ekinn 1.300 km eins og ný, alltaf...
PORSCHE CAYENNE Sport 2004
Eldsneyti / VélBensín 8 strokkar4.500 cc.351 hö. 2.305 kg.Drif / Stýrisbúnaður...
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
 
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
Breyting á deiliskipulagi á húsavík

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....