Telja vanrækslu PwC kosta 130 milljarða
Endurskoðendur PricewaterhouseCoopers (PwC) árituðu reikninga Glitnis þrátt fyrir að þeim hafi átt að vera ljóst að ekki væri allt með felldu. Það að PwC sinnti ekki lögboðnum skyldum sínum kostaði Glitni einn milljarð Bandaríkjadala, 130 milljarða króna, hið minnsta. Þetta er meðal þess sem kemur fram í stefnu Glitnis sem var dómtekin í New York í gær.
PwC sendi fyrr í dag frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að félagið standi við áritanir sínar.
Í stefnunni er farið yfir það hvernig endurskoðandi PwC, Sigurður B. Arnþórsson, hafi áritað reikninga Glitnis áður en farið var í skuldabréfútboð í Bandaríkjunum.
Þess sé krafist samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilareglum að endurskoðendur fari yfir reikninga með gagnrýnum og skilvirkum hætti.
Engu virðist hafa skipt að Fjármálaeftirlitið hafi gert ýtrustu kröfur á PWC varðandi endurskoðun á reikningum Glitnis. Meðal annars vegna náinna eignartengsla stærstu hluthafa.
Fram kemur í stefnunni að FME hafi bent PwC á að lánshæfismatsfyrirtækin og erlendir fjárfestar hefðu stuttu áður (þetta er í september 2007) gert athugasemdir við hversu eigendahópur íslensku bankanna var þröngur og lánveitingar bankanna til helstu hluthafa sinna. Því fyrirskipaði FME PwC að senda frá sér bætta skýrslu fyrir 14. september 2007. Ekki var farið að þessari beiðni áður en skuldabréfaútboðið fór fram í New York.
PwC hafi einnig vitað á þessum tíma hafi tengsl Glitnis og FL-Group orðið enn nánari (FL-Group og tengdir aðilar áttu 39% hlut fyrir í Glitni). Á þessum tíma keypti Glitnir stóran hlut í Tryggingamiðstöðinni í þeim eina tilgangi að selja FL-Group hlutinn með endurgjaldi í eigin bréfum FL-Group.
Jafnframt fjármagnaði Glitnir kaup FL-Group á þeim hlutabréfum sem eftir stóðu í TM. Þessi viðskipti juku fjárhagsleg tengsl Glitnis og FL-Group og annarra félaga tengdum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni enn frekar og hefðu átt að vekja athygli endurskoðanda PwC en gerðu það ekki.
Bloggað um fréttina
-
Heimir L Fjeldsted Guðmundur Ólafsson og Þorvaldur Gylfason brugðust -
Magnús Þór Jónsson Endurskoðendafyrirtækin -
Páll Vilhjálmsson Meðhlauparar finna til tevatnsins
Innlent »
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 22. júlí 2010, Innlent PwC krefst frávísunar í New York
- Fimmtudagur, 9. desember 2010, Innlent Störf endurskoðenda rannsökuð
- Miðvikudagur, 1. desember 2010, Innlent Vísa ásökunum slitastjórnar á bug
- Mánudagur, 13. desember 2010, Innlent PwC: Ábyrgðin hjá stjórnendum bankanna
- Föstudagur, 3. desember 2010, Innlent Krefur PwC um bætur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































