Bændum býðst að flytja sauðfé
Íslenskt sauðfé. mbl.is/Árni Torfason
Búnaðarsamband Suðurlands fékk í dag til afnota 3.000 hektara beitarsvæði í Meðallandinu sem er í umsjá Landgræðslu ríkisins. Þangað býðst bændum að flytja sauðfé en áætlað er að fljótlega sé hægt að hefja flutninga þangað. Verið er að skoða fleiri beitarhólf.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Bændasamtökum Íslands og Búnaðarsambandinu.
Sambandið hvetur bændur, sem geta tekið við mjólkurkúm tímabundið frá öskufallssvæðinu, til að hafa samband. Hugmyndir um miðlun á heyi og túnum séu nú ræddar á vettvangi sveitarstjórna í samvinnu við samtök bænda.
Þegar hafi verið kynnt þau úrræði sem bændum
bjóðast í frumvarpi um breytt búvörulög. Þau felast m.a. í að bændum
gefst kostur á að flytja kýr í önnur fjós eða draga saman búskap
tímabundið. Álag á bændur er mikið og afleysingu vantar. Nauðsynlegt er
að finna úrræði svo bændur geti komist úr öskukófinu af og til.
Dagana 11. og 12. maí fóru rúmlega 20 héraðs- og landsráðunautar ásamt fleirum í heimsóknir á 120 bú á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Tilgangurinn var að ræða við bændur og m.a. meta með þeim aðstæður og þörf fyrir aðstoð vegna fóðuröflunar og beitar í vor og í sumar. Úrvinnslu gagna er ekki að fullu lokið úr ferðinni en niðurstöður ættu að liggja fyrir í byrjun næstu viku.
Sú staða sem uppi er á svæðinu er mörgum bændum erfið. Öskufall og rykmengun hefur haft veruleg áhrif á daglegt líf og erfitt hefur reynst að sinna búskap með viðunandi hætti. Þó má segja að almennt séu bændur staðráðnir í að halda sínu striki eins og kostur er þrátt fyrir erfiðar aðstæður. Í samantekt ráðunauta kemur fram að fóðurbirgðir eru nægar á svæðinu og eiga að duga í nokkrar vikur hið minnsta. Engin leið er að sjálfsögðu að segja til um þróun mála því allt veltur það á goslokum.
Nánar á vef Bændasamtaka Íslands og Bændablaðsins.
Bloggað um fréttina
-
Ólafur Ragnarsson "seint í rassinn gripið" -
Ásdís Sigurðardóttir Svona lítur þetta út núna kl. 21.15 frá Selfossi séð. -
Þorsteinn H. Gunnarsson Samvinnuhugsjónin -
Sigurður Haraldsson Flytja sauðféð í Meðallandið?
Innlent »
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 16. maí 2010, Innlent Bændur vilja losna við sauðfé
- Fimmtudagur, 26. maí 2011, Innlent Ástand búfjár almennt gott
- Mánudagur, 17. maí 2010, Innlent Fé flutt frá þremur bæjum
- Föstudagur, 14. maí 2010, Innlent SS býðst til að slátra fé
- Þriðjudagur, 18. maí 2010, Innlent Vilja kaupa hey
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































