Tónlist og sól á Austurvelli

Margir njóta góða veðursins og tónlistarinnar á Austurvelli.
Margir njóta góða veðursins og tónlistarinnar á Austurvelli. mbl.is/Golli

Margir njóta nú veðurblíðunnar og tónlistar á Austurvelli í Reykjavík en þar standa nú yfir tónleikar til stuðnings níumenningunum, sem eru ákærðir fyrir brot gegn friðhelgi Alþingis.

Að sögn viðstaddra sitja margir á Austurvelli og hlusta á tónlistina og einnig eru veitingahús í nágrenninu þéttsetin.  

Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru: Páll Óskar, Hjaltalín, KK og Ellen, Vilborg Dagbjartsdóttir, RASS, Ari Eldjárn, félagar úr Hjálmum, Parabólurnar, Jón Atli Jónasson og Varsjárbandalagið.

Félagar úr Hjálmum leika á Austurvelli.
Félagar úr Hjálmum leika á Austurvelli. mbl.is/Golli
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert