Hættur í stjórn Iceland og House of Fraser

Jón Ásgeir Jóhannesson. stækka

Jón Ásgeir Jóhannesson. mbl.is/Ómar

Jón Ásgeir Jóhannesson er farinn úr stjórn Iceland keðjunnar og stjórn House of Fraser í kjölfar þess að mál var höfðað gegn honum af slitastjórn Glitnis í New York, samkvæmt frétt á vef Retail Week.

Glitnir fór fram á að eignir Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Pálma Haraldssonar og Lárusar Welding verði kyrrsettar á Íslandi í síðustu viku. Hljóðar krafan upp á sex milljarða króna. Kyrrsetningarbeiðnin hefur ekki verið tekin fyrir hjá sýslumanninum í Reykjavík og er ekki gert ráð fyrir að það verði gert í dag.

Eignir Jóns Ásgeirs eru kyrrsettar víðsvegar um heiminn en breskur dómari staðfesti kyrrsetninguna í síðustu viku og þarf  Jón Ásgeir að upplýsa um eignir sínar fyrir klukkan 13 í dag. Að öðrum kosti á hann yfir höfði sér fangelsisvist. Ekki hefur fengist upplýst hvort listinn hefur verið lagður fram.

Segir í tilkynningu sem almannatengslafyrirtækið Kraeb Gavin Anderson hefur sent frá sér að eftirsjá fylgi ákvörðun Jóns Ásgeirs um að fara úr stjórnum félaganna en hann hafi ákveðið þetta til þess að koma í veg fyrir að málshöfðunin gegn honum hafi óréttmæt skaðleg áhrif á smásölufyrirtækin. Í tilkynningunni sem Retail Week vísar í kemur fram að Jón Ásgeir muni verja sig gegn þeim ásökunum sem Glitnir beri á hann og ítrekað að Jón Ásgeir sé saklaus af þeim ásökunum sem þar komi fram. Jafnframt er tekið fram að ekki verði veittar frekari upplýsingar á meðan málaferlin standa yfir.

Glitnir banki hóf í síðustu viku málaferli fyrir dómstól á Manhattan í New York-ríki í Bandaríkjunum gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, áður helsta hluthafa bankans, Lárusi Welding, áður forstjóra Glitnis, Þorsteini Jónssyni, áður stjórnarformanni, ásamt fleiri fyrrverandi stjórnarmönnum, hluthöfum og öðrum sem áttu hlut að máli með Jóni Ásgeiri, fyrir að hafa með sviksamlegum og ólöglegum hætti haft fé af bankanum sem nemur meira en tveimur milljörðum dala.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Selfossi. Úr myndasafni.

Manni bjargað úr Ölfusá

22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Avensis 1800, árg. 2006 5 gíra.
Fæst á aðeins 1200 þús. stgr. Ek. 175 þús. Gott lakk og vel með farinn bíll. E...
ALLT MILLI HIMINS OG JARÐAR !!!!!!!!!!
NOTAÐ&NÝTT er ný verslun á Skemmuvegi 6 á bak við BYKO. Mikið úrval af fallegum ...
Lazy boy stóll - microfiber áklæði
Hef til sölu 6 ára gamlan lazy boy stól, raunverulegur lazy boy stóll, keyptur í...
Kæli- og frystiklefar - allar stærðir
Kæli- og frystiklefar sem eru einstaklega auðveldir í uppsetningu. Hægt er að fá...
 
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...