Jóni sagt upp störfum hjá Stoðum

Jón Sigurðsson.
Jón Sigurðsson.

Stjórn Stoða hefur veitt Jóni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra fyrirtækisins, lausn frá störfum vegna skaðabótamálsins, sem slitastjórn Glitnis, sem er stærsti hluthafi Stoða, hefur höfðað í New York á hendur Jóni og fleiri einstaklingum.

„Með þessari ákvörðun er stjórn Stoða ekki að taka afstöðu til þess máls er um ræðir. Það er hins vegar mat stjórnar Stoða, með hagsmuni félagsins að leiðarljósi, að Jón geti ekki sinnt starfi framkvæmdastjóra Stoða meðan þessu máli vindur fram. Júlíus Þorfinnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Stoða," segir í tilkynningu frá Stoðum. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert