Leita réttar síns fyrir dómstólum

Helgi Magnússon. stækka

Helgi Magnússon. mbl.is

Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna ætlar að láta reyna á það fyrir dómstólum hvort íslenskir bankar hafi blekkt sjóðinn með markaðsmisnotkun sem kostaði hann umtalsvert tap m.a. í gjaldmiðlunarsamningum. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna mun gera kröfur um bætur, að því er fram kom í máli Helga Magnússonar, stjórnarformanns sjóðsins, á ársfundi hans í kvöld. 
 
„Ein af meginniðurstöðum skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis er að flest bendi til þess að íslenskir bankar og mikilvægir aðstandendur þeirra hafi stundað markaðsmisnotkun í viðskiptum með hlutabréf og í gjaldeyrisviðskiptum sem leiddi m.a. til þess að krónan féll með gríðarlegum afleiðingum fyrir þá sem skulduðu í erlendri mynt. Lífeyrissjóður verzlunarmanna var með gjaldmiðlunarsamninga í gildi hjá tveimur af stóru bönkunum. Við fall krónunnar varð umtalsvert tap á þeim samningum. Tapið var fært til gjalda hjá sjóðnum í ársreikningi 2008,“ sagði Helgi í ræðu sinni.
 
„Í ljósi þess sem kemur fram í skýrslu Rannsóknarnefndar telur stjórn sjóðsins einsýnt að látið verði reyna á það fyrir dómstólum hvort sjóðurinn hafi verið beittur blekkingum. Kröfur verða gerðar um bætur sjóðnum til handa. Ekkert annað kemur til greina en að fá niðurstöðu dómstóla í þessum alvarlegu málum. Okkur er kunnugt um að aðrir lífeyrissjóðir, sem eru í svipaðri stöðu, hafa uppi sambærileg áform um lögsóknir,“ sagði Helgi ennfremur.

Í fremstu röð

Íslenska lífeyrissjóðskerfið er í fremstu röð í heiminum í dag en meira en 1.800 milljarðar króna eru í íslensku lífeyrissjóðunum. Þetta kom jafnframt fram í máli Helga.

Einungis Hollendingar og Svisslendingar standi jafnfætis Íslendingum hvað varði styrk lífeyrissjóðskerfisins. Þessi þrjú ríki eigi sparnað í lífeyrissjóðum sem nemi 120-130% af landframleiðslu en önnur ríki standi þar langt að baki. 

„Þetta er mikilvægt fyrir langtímasparnað Íslendinga og lífeyrissjóðirnir munu gegna lykilhlutverki í endurreisn Íslands ef vel tekst til og sjóðirnir fá góðan stuðning og vinnufrið,“ sagði Helgi.
 
Af 1.800 milljarða eignum íslensku lífeyrissjóðanna eru 530 milljarðar króna í erlendum eignum eða um 30%. Helgi sagði að þessi fjárhæð þyrfti að vera hærri til að tryggja betri áhættudreifingu á eignum sjóðanna. „Íslenska hagkerfið hefur ekki reynst betur en svo að landsmenn væru mun betur settir ef hærra hlutfall eigna sjóðanna væri geymt og ávaxtað í öðrum hagkerfum en hinu íslenska. Því eru núverandi gjaldeyrishöft sjóðunum skaðleg og við hljótum að gera þá kröfu til stjórnvalda að þau hraði afnámi gjaldeyrishafta sem mest má verða,“ sagði Helgi.

PDF-skrá Ræða Helga Magnússonar.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Selfossi. Úr myndasafni.

Manni bjargað úr Ölfusá

22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Svíar sigruðu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvísjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigur þess mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
ORLOFSHÚS Á AKUREYRI
Gisting Akureyri Skógarhlíð 27, 601 Akureyri, 160 fm einb...
Gisting á Höfuðborgarsvæðinu.
Erum með laus herbergi í gistiheimilinu. Tilboð í maí. Gistiheimilið Lily Nýb...
TOYOTA PRIUS 7/2008 EKINN 64000 KM
Ti sölu mjög gott eintak af Prius,einn eigandi 100% þjónusta áett verð 2.790.000...
ORLOFSÍBÚÐIR
Orlofsíbúðir - Hótel Sandafell Njótið n...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...