Niðurfellingu ábyrgða rift

stækka

Ómar Óskarsson

Slitastjórn Kaupþings banka sendi í morgun um 80 starfsmönnum gamla Kaupþings tilkynningu um riftun á niðurfellingu persónulegra ábyrgða vegna lána sem bankinn veitti þáverandi stjórnendum og lykilstarfsmönnum til hlutabréfakaupa í Kaupþingi.

Niðurfellingin var ákveðin af stjórn Kaupþings banka þann 25. september 2008. Heildarfjárhæð lánanna sem um ræðir er hátt í 32 milljarðar króna. Tæplega 15 milljarðar voru veittir að láni með persónulegri ábyrgð. Langstærsti hluti lánanna var veittur yfirstjórnendum bankans. Segir slitastjórnin, að til marks um það megi nefna að um 20 fyrrum starfsmenn skulda bankanum tæp 90% heildarfjárhæðarinnar en þeir voru flestir lykilstjórnendur bankans og hafa allir látið af störfum.

Hlutabréfaeignin verðlaus

Forsaga málsins er sú að Kaupþing banki gerði, einkum á árunum 2005–2007, kaupréttarsamninga sem m.a. fólust í því að bankinn veitti starfsmönnum sínum lán til hlutabréfakaupa í bankanum, með veði í bréfunum sjálfum. Starfsmenn voru í persónulegri ábyrgð að fullu eða að hluta. Í flestum tilvikum voru lánasamningar á þann veg að skuld viðkomandi var ekki komin á gjalddaga þegar Kaupþing féll 8. október 2008. Fyrir liggur að hlutabréfaeign starfsmanna í bankanum er verðlaus og veðin fyrir lánunum einskis virði.

Í september 2008 höfðu fjármál starfsmanna Kaupþings verið til umfjöllunar hjá starfskjaranefnd bankans. Þar kom fram að það væri mat nefndarinnar að sumir lykilstarfsmanna bankans væru í verulegum fjárhagsörðugleikum vegna lækkandi gengis á hlutabréfum bankans. Það væri mikilvægt að lykilstarfsmenn bankans gætu einbeitt sér að hlutverki sínu og það væri jafnframt mat nefndarinnar að leiðrétta ætti hlut þeirra.

Á stjórnarfundi í Kaupþingi banka hinn 25. september 2008 voru þessi lán starfsmanna bankans til umfjöllunar. Á fundinum samþykkti stjórnin að veita Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrum forstjóra, heimild til þess að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna á lánum vegna hlutabréfakaupa í bankanum og takmarka ábyrgð þeirra framvegis við veðsett hlutabréf.

„Slitastjórn Kaupþings telur að niðurfelling persónulegrar ábyrgðar sé gjafagerningur í skilningi gjaldþrotalaganna og að auki til þess fallin að rýra hlut kröfuhafa bankans. Því hefur verið tekin ákvörðun um að rifta þessum gerningum og hafa viðkomandi einstaklingum og félögum verið send riftunarbréf þess efnis. Verði ekki gerð skil innan 10 daga frests mun slitastjórn Kaupþings stefna viðkomandi málum fyrir dóm," segir í tilkynningu frá slitastjórninni.

Vilja rifta flutningi lána í einkahlutafélög

Þar segir, að flestir starfsmenn beri persónulega ábyrgð á lánum sem þeir tóku hjá bankanum að öllu leyti eða að hluta. Snemma árs 2006 veitti Fjármálaeftirlitið heimild til þess að starfsmenn færðu lán vegna hlutabréfakaupa í einkahlutafélög.

Liðlega 10 þeirra starfsmanna sem um ræðir nýttu sér þessa heimild og fluttu skuldir sínar við bankann vegna hlutabréfakaupa úr persónulegri eigu í einkahlutafélög. „Slitastjórn Kaupþings mun leita allra leiða til að rifta flutningi lána í einkahlutafélög," segir í tilkynningunni. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá Selfossi. Úr myndasafni.

Manni bjargað úr Ölfusá

22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á manninn þar sem hann hékk á klettanös. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »

Svíar sigruðu Evróvisjón 2012

22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvísjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigur þess mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Snyrti og nuddbekkir
Glæsilegur snyrti og nuddbekkur fáanlegur í 3 litum. 185*60-81cm. Það sem á mynd...
Ormar í veiðina frá Óþekktarormum
Nú er maðkur í mysunni og ormar til sölu! Úrvals laxaormar feitir og vænir á ...
Vor í Tungunum - www.eyjasolibudir.is
Falleg sumarhús til leigu um helgar og virka daga. Fallegt umhverfi. Heit laug o...
Hænsnahús til sölu
Til sölu heimili fyrir landnámshænur. Einangrað og klætt að innan. Varpkassar og...
 
5 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...