„Sem betur fer ráða þeir ekki för í þessu máli"

Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
Jón Steindór Valdimarsson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins

„Rétt er að rifja upp að þegar Magma Energy festi fyrst hlut í HS Orku fyrir nokkrum misserum tók hluti ríkisstjórnar og alþingismanna því afar illa og fann flest til foráttu. Enn eru þeir sömu við sitt heygarðshorn. Sem betur fer ráða þeir ekki för í þessu máli,“ segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins í tilkynningu.

„Það er sérkennilegt að á sama tíma og við berjumst við að auka traust á Íslandi og við blasir að við þurfum sárlega á erlendum fjárfestingum að halda skuli annar helmingur stjórnarliðsins bregðast við með þeim hætti sem heyra má og sjá í fjölmiðlum,“ segir Jón Steindór enn fremur í tilkynningunni.

Í morgun var greint frá því að Magma hafi keypt hlut Geysis Green í HS Orku og hafa þingmenn VG lýst yfir andstöðu yfir því að eignarhald á íslenskum orkufyrirtækjum fari í útlenda eigu.

„Við eigum að fagna því að erlent fé kemur til landsins og við eigum að vinna með erlendum fjárfestum að uppbyggingu atvinnulífsins. Ramminn um starfsemi þeirra er í okkar höndum eins og annars atvinnulífs og í þeim efnum eigum við að gera sömu kröfur til þeirra sem hingað koma og þeirra sem fyrir eru,“ segir Jón Steindór í fréttatilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert