Braut gegn þroskaskertum pilti
Hæstiréttur dæmdi í dag 55 ára karlmann, Jón Sverri Bragason, í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn þroskaskertum ungum pilti. Brotin áttu sér stað þegar pilturinn var þrettán til fimmtán ára. Rétturinn staðfesti bætur til hana piltsins, 1,5 milljón króna, en mildaði refsingu Héraðsdóms Reykjavíkur um hálft ár.
Ekki verður annað séð af dómi Hæstaréttar en refsingin hafi meðal annars verið milduð sökum þess hversu langan tíma tók að ljúka gerð málsgagna og senda til Hæstaréttar. Í dómnum segir að rannsókn málsins hafi hafist 3. apríl 2008 og lokið 25. september sama ár. Málsgögn hafi síðan verið send ríkissaksóknara 17. desember 2008 og ákæra gefin út 28. janúar 2009.
„Héraðsdómur var kveðinn upp 10. júní 2009, en sem fyrr segir var honum áfrýjað 29. júlí sama ár. Málsgögn bárust Hæstarétti ekki fyrr en 4. febrúar 2010 og eru þau ekki umfangsmikil. Engin viðhlítandi skýring hefur verið gefin á þeim töfum sem urðu á að senda málið til ríkissaksóknara eftir að rannsókn lauk og heldur ekki á því hvers vegna það dróst í rúma átta mánuði að ljúka gerð málsgagna,“ segir í dómnum.
Jafnframt taldi Hæstiréttur að heimfæra ætti hluta brota mannsins undir annað ákvæði almennra hegningarlaga en Héraðsdómur Reykjavíkur, en refsimörk þess ákvæðis eru mun lægri en hins.
Notærði sér tölvufíkn og þroskaskerðingu
Jón Sverrir sem er með lögheimili í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafði í mörg skipti munnmök við piltinn og fékk hann fjórum eða fimm sinnum til að hafa við sig endaþarmsmök. Sannað þótti að hann hafi tælt piltinn til kynmakanna með því að notfæra sér þroskaskerðingu hans og tölvufíkn. Oftast greiddi hann fyrir kynmökin með tölvuleikjum eða peningum.
Málið komst upp þegar móðir piltsins var vör við að hann fór óvænt að heiman frá sér eftir kvöldmat og sagðist ætla í gönguferð. Henni þótti grunsamlegt að hann færi í slíkar gönguferðir og fékk á tilfinninguna að ekki væri allt með felldu. Hún fékk grun sinn staðfestan þegar hún skoðaði tölvu piltsins. Þar voru vistuð samskipti hans við Jón Sverri, sem kallaði sig Nonna, þar sem þeir mæltu sér mót. Kom fram í samskiptum þeirra, að pilturinn fengi fimm þúsund krónur ef hann hefði endaþarmsmök við Nonna.
Jón Sverrir kannaðist við að hafa ætlað að hitta piltinn og einnig að þeir hefðu áður hist. Hann sagði hins vegar ekkert kynferðislegt hafa átt sér stað þeirra í milli. Hafi þeir setið saman í nokkrar mínútur, keyrt stutta stund og að lokum fékk pilturinn tölvuleik sem Jón Sverrir keypti á ferðum sínum erlendis.





































