Eldfellít og heklaít eru nýjar steindir

Útfellingar á hraungjalli í Hrunagili.
Útfellingar á hraungjalli í Hrunagili. mynd/Náttúrufræðistofnun

Í Surtsey, Eldfelli og Heklu hafa á undanförnum árum fundist margar tegundir útfellinga og hafa greinst 27 tegundir svonefnda steinda, sem ekki voru áður þekktar í náttúrunni.

Tvær tegundanna hafa þegar verið samþykktar sem nýjar steindir fyrir vísindin af Alþjóða Steindafræðisambandinu, eldfellít, sem fannst í Eldfelli á Heimaey, og heklaít, sem fannst í aðalgosprungunni sem var virk í Heklugosinu 1991.

Þetta kemur fram á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands. Í eldgosum, eða í kjölfar þeirra, myndast ýmiss konar útfellingar. Þessar eldfjallaútfellingar mynda skánir á yfirborði hrauna, í hraunhellum eða við gígop. Flestar útfellinganna myndast beint úr hraunkvikugasi sem streymir út um op í kólnandi berginu.

Samsetning eldfjallaútfellinganna úr Fimmvörðuhálsgosinu var rannsökuð með röntgenbrotgreiningu í Kaupmannahafnarháskóla. Eru útfellingasteindirnar ralstónít, „HD“ og thenardít   meðal þeirra tegunda sem myndast hafa á hrauni sem rann á Fimmvörðuhálsi.

Vefur Náttúrufræðistofnunar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert