Verulega dregið úr kvikuflæði
Gosmökkurinn í Eyjafjallajökli hefur lækkað undanfarna daga sem bendir til þess að dregið hafi verulega úr kvikuflæði (vel undir 50 tonn/sek) miðað við í lok síðustu viku og um helgina. Enn má búast við sveiflum í gosvirkninni með
breytilegu gjóskufalli að sögn Veðurstofu Íslands.
Gosmökkurinn er í um 5 km hæð samkvæmt veðurratsjá. Sunnanátt er í fjallahæð yfir eldstöðinni, 10 metrar á sekúndu en efst í gosmekkinum er suðsuðvestanátt, 13 metrar á sekúndu.
Ein tilkynning hefur borist af öskufalli og er hún frá Fljótsdal sem er innsti bær í Fljótshlíð. Þar hófst öskufallið í nótt og stendur enn.
Tíu eldingar hafa mælst á eldingamælum bresku veðurstofunnar frá miðnætti og til klukkan 13 en eftir það hefur engin elding mælst.
Enn er lítið bræðsluvatn frá eldgosinu og í dag hefur sjatnað í ám við Eyjafjallajökul eftir rigninguna í gær. Á morgun er áætlað að setja mælitæki í Bakkakotsá til að reyna að sjá forboða hugsanlegra aurflóða eins og urðu í Svaðbælisá í gær.
Ekkert hefur sést til gosstöðvanna í tvo daga sökum veðurs.
Ratsjármyndir úr TF-SIF sýna að engar stórvægilegar breytingar hafa átt sér stað í ískötlunum þar sem sprengigígurinn hleðst upp. Gosið er í meginatriðum sprengigos og lítið sem ekkert hraunrennsli niður Gígjökul.
Óróinn er nokkuð stöðugur og líkur því sem verið hefur síðustu daga.
Tveir smáskjálftar hafa mælst í jöklinum frá miðnætti, á um 7 og 3 km dýpi.
Bloggað um fréttina
-
Torfi Kristján Stefánsson Gosvirkni næstu daga! -
Ásdís Sigurðardóttir Jess, I love it, nokkrar skemmtilegar myndir til að gleðja ... -
P.Valdimar Guðjónsson Á eldfjallaeyjunni. -
Pálmi Freyr Óskarsson Grein úr Eyjafréttum..........
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 21. maí 2010, Innlent Gosið gengur upp og niður
- Þriðjudagur, 18. maí 2010, Innlent Sprengigos er enn mikið
- Mánudagur, 23. maí 2011, Innlent Gosmökkurinn í 5-7 km hæð
- Þriðjudagur, 11. maí 2010, Innlent Gosvirknin helst stöðug
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Enn góður kraftur í gosinu
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































