HR hafnar tillögu prófessoranna
Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, kveðst ekki geta fallist á tillögu Félags prófessora við ríkisháskóla um að Háskóli Íslands taki við nemendum Háskólans í Reykjavík. Ari leggur áherslu á að auka þurfi samstarf háskólanna og telur best að halda samkeppni þeirra en ef nauðsynlegt væri að fara þessa leið væri nær að Háskólinn í Reykjavík tæki við nemendum HÍ í tækni- og viðskiptagreinum og lögum.
Ari Kristinn segir það skiljanlegt og mannlegt að Félag prófessora við ríkisháskóla leggi fram slíkar tillögur til að vernda sín eigin störf. „En við þurfum að horfa á þetta út frá miklu breiðari hagsmunum Íslands í heild og þá sérstaklega atvinnulífsins, og út frá þeirri miklu uppbyggingu sem framundan er. Ég tel að það sé miklu nær fyrir háskólafólk á Íslandi að snúa bökum saman frekar en að beina spjótunum hvert að öðru því við stöndum aftarlega í fjármögnun háskóla miðað við nágrannalöndin og háskólamenntun skiptir gríðarlega miklu máli fyrir uppbygginguna sem er framundan.“
Ari bætir við að tillagan standist ekki faglega, meðal annars vegna þess að Háskólinn í Reykjavík útskrifi tvo þriðju af tæknimenntuðu háskólafólki á Íslandi, þ.e. í verkfræði, tölvunarfræði og skyldum greinum, og um helminginn af þeim sem útskrifast í viðskiptagreinum. Þetta sé því gríðarmikill þáttur í starfsemi háskólans og engin „aukabúgrein“.
Ari segir Félag prófessora við ríkisháskóla ekki taka tillit til þess að í rannsóknum standi Háskólinn í Reykjavík jafnfætis Háskóla Íslands í þessum greinum, þ.e. tækni, viðskiptum og lögum, og töluvert framar í sumum þeirra. „Þannig að það væri annað sem myndi tapast og þetta eru rannsóknir sem skipta miklu máli fyrir Ísland og atvinnulífið.“
Ari bætir við að kostnaður ríkisins á hvern útskrifaðan nemanda og vegna þessara rannsókna í Háskólanum í Reykjavík sé hlutfallslega lægri en hjá Háskóla Íslands. „Þannig að ef við viljum fara þessa leið þá væri nærtækara, faglega og fjárhagslega, að færa háskólakennslu í tækni, viðskiptum og lögum til Háskólans í Reykjavík.“
Ari tekur þó fram að samkeppnin milli háskóla sé af hinu góða og hafi gefist mjög vel. Besti kosturinn sé því að halda henni ef mögulegt er.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 6. nóvember 2010, Innlent Ósammála áformum um sameiningu
- Föstudagur, 21. maí 2010, Innlent Ekki hægt að réttlæta kennslu í sömu greinum í mörgum skólum
- Mánudagur, 11. janúar 2010, Innlent Ný bygging HR tekin í notkun
- Sunnudagur, 20. júní 2010, Innlent „Niðurskurði til háskóla verður nú að linna“
- Þriðjudagur, 9. nóvember 2010, Innlent Dragi djúpt andann
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































