Helgin einstaklega blíð
Veðrið var einstaklega blítt um hvítasunnuhelgina á Suður- og Vesturlandi að sögn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings. Það sköpuðust ákjósanleg skilyrði fyrir háan hita víða, enda hægviðrasamt, háþrýstingur og hlýtt í lofti.
„Hvítasunnudagur var hlýjastur. Þá fór hann í 20,3 gráður í Árnesi í Gnúpverjahreppi. Það var hæsti hiti sem mældist þessa helgi. Það var hlýjast í Reykjavík í gær, en þá fór hann í 16 gráður,“ segir Einar í samtali við mbl.is.
Hann bendir á að þegar það geri ágætis veður um landið sunnan- og vestanvert þá andi köldu af norðri. „Í útsveitum fyrir norðan þá var hitinn ekki nema um fjórar til fimm gráður um miðjan daginn í gær. Og næturfrost ekkert óalgengt á þessum slóðum.“
Einar tekur hins vegar fram að það sé algengt að hitinn fari í um 20 stig á skjólsælum stöðum á Suður- og Vesturlandi, t.a.m. á Þingvöllum, í Biskupstungunum og uppsveitum Borgarfjarðar.
Hann segir að samkvæmt upplýsingum sem Trausti Jónsson veðurfræðingur sé búinn að taka saman um það hvenær hitinn fari fyrst í 20 stig á vorin að jafnaði, þá gerist það sífellt fyrr. „Síðustu ár þá hefur þetta að jafnaði verið í kringum 20. til 25. maí,“ segir Einar og bendir á að þetta sé því á réttu róli.
Einar segir áfram sé spáð hægviðri næstu daga, en áfram norðanátt. Ekki verði jafn hlýtt loft yfir landinu og því sé ólíklegt að hitinn verði jafn hár á Suðurlandi og hann hafi verið nú um helgina.
Að sögn Einars er útlit fyrir að það fari að rigna í næstu viku.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 14. júní 2010, Innlent Spáir hitabylgju á Austurlandi
- Sunnudagur, 13. september 2009, Innlent Spáð allt að 25 stiga hita
- Miðvikudagur, 1. júlí 2009, Innlent Hitabylgja á Íslandi og Bretlandi
- Fimmtudagur, 1. júlí 2010, Innlent Júní hefur verið sérlega hlýr
- Þriðjudagur, 2. mars 2010, Innlent Febrúarveðrið reyndist vera mjög kaflaskipt
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































