Yfirlýsing forsætisráðuneytis

Stjórnarráðið. stækka

Stjórnarráðið. Ómar Óskarsson

„Í tilefni af yfirlýsingum formannafundar ASI, um meint aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum hefur forsætisráðuneytið tekið saman meðfylgjandi yfirlit yfir helstu verkefni til atvinnusköpunar sem unnið hefur verið að að undanförnu,“ segir í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. 

Yfirlýsingin eru viðbrögð við harðri gagnrýni forystumanna ASÍ á stjórnvöld fyrir meint aðgerðaleysi í atvinnumálum.

„Forsætisráðuneytið vísar því á bug tilhæfulausum staðfhæfingum um aðgerðarleysi í atvinnumálumm,“ segir í yfirlýsingunni sem fylgir hér orðrétt með í viðhengi.

Í yfirlýsingunni segir:

Staða helstu atvinnuskapandi aðgerða og fl. verkefna

samkvæmt stöðugleikasáttmálanum.

Atvinnuátak ríkisstjórnarinnar. Í sérstöku atvinnuátaki ríkisstjórnarinnar voru auglýst laus til umsóknar 856 störf. Um er að ræða tímabundin störf sem standa námsmönnum og atvinnuleitendum til boða og nemur ráðningartímabil þeirra allt frá 6 vikum upp í 6 mánuði. Stefnt er að því að ljúka ráðningum í flest störfin fyrir lok mánaðarins.

Framlag til Nýsköpunarsjóðs námsmanna tæplega fimmfaldað. Framlag til Nýsköpunarsjóðs námsmanna verður tæplega fimmfaldað þannig að sjóðurinn mun samtals hafa 120 milljónir króna til ráðstöfunar og þannig megi tryggja yfir 400 námsmönnum sumarvinnu við rannsóknar og þróunarstörf.

Ný fangelsisbygging. Vinnuhópur dómsmálaráðuneytis hefur unnið að frumathugun á byggingu fangelsis sem vænst er að geti farið í útboð á næstu þremur mánuðum. Gert er ráð fyrir að með útboði verði leitað að aðila sem væri tilbúinn að byggja og leigja húsnæði fyrir þessa starfsemi.

Háskólasjúkrahús. Málið er í eðilegum farvegi. Samkvæmt mannaflagreiningu á byggingu nýs Landsspítala munu 30 manns starfa við framkvæmdina á þessu ári, 2010, 80 manns árið 2011, 359 manns árið 2012, 756 manns á árunum 2013 og 2014, 636 árið 2015 og 23 árið 2016.

Uppbygging á fjölsóttum ferðamannastöðum. Frumvarp er í vinnslu um Framkvæmdasjóð ferðaþjónustunnar sem byggir á umhverfisgjaldi á ferðamenn, á bilinu 500 til 700 millj. kr.Sjóðnum er ætlað að standa undir uppbyggingu aðstöðu fyrir ferðamenn á fjölsóttum ferðamannastöðum, þjóðgörðum og friðlýstum svæðum.

Hjúkrunarrými. Undirritaðir hafa verið samningar við fimm af níu sveitarfélögum um byggingu hjúkrunarrýma. Alls er um að ræða 360 rými sem kalla á 1200 ársverk víða um land.Viðhaldsverkefni. Ákveðið hefur verið að verja auknu fjármagni til viðhalds opinberra bygginga um land allt og áætlar að verja til þess 9-10 milljörðum á næstu þremur árum. Það mun skapa um 600 störf.

Orkuframkvæmdir. Fjárfestingar sem tengjast orkufrekum iðnaði og raforkukerfinu eru áætlaðar alls um 400 milljarðar kr. til ársins 2017, þar af um 265 milljarðar kr. í ár og næstu þrjúár.

Samantekið er staða þessara verkefna eftirfarandi:

Bygging Búðarhálsvirkjunar og stækkun álversins í Straumsvík:

Landsvirkjun hefur nýlega tekið ákvörðun um að bjóða út undirbúningsframkvæmdir við

Búðarhálsvirkjun:

Kostnaðaráætlun vegna þessara framkvæmda er um 600-800 millj. kr. og gert er ráð fyrir 145 störfum við framkvæmdirnar. Þegar ákvörðun framhald framkvæmda liggur fyrir er áætluð fjárfesting við virkjunina um kr 20 milljarðar á fjórum árum og fjöldi ársverka er áætlaður um 500 ársverk. Tinto Alcan um sölu á orku frá Búðarhálsvirkjunar til stækkunnar á álverinu í Straumsvík.

Bygging álvers í Helguvík:

Svo virðist sem nokkur kraftur hafi komist í Helguvíkurverkefnið að undanförnu og HS Orka, Magma og Norðurál vinni að því að klára mál þannig að hægt sé að hefja framkvæmdir við fyrsta áfanga álvers í Helguvík í sumar.

Orkuverkefni á Norðurlandi:

Iðnaðarráðherra hefur undirritað viljayfirlýsingu við þrjú sveitarfélög í Þingeyjarsýslu um aðgerðir til að stuðla að atvinnuuppbygginu sem byggir á nýtingu jarðvarma á svæðinu. Markmið þeirrar vinnu sem fara mun fram í samræmi við yfirlýsinguna miðar að því að skapa þær aðstæður fyrir 1. október 2010 að hægt verði að ganga til samninga um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslum.

Bygging gagnavers Verne Holding í Reykjanesbæ:

Fjárfestingarsamningur og frumvarp til heimildarlaga vegna byggingar gagnavers Verne Holding ehf. er til umfjöllunar á Alþingi og hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA). Þá hafa stjórnvöld til skoðunar reglur um meðferð virðisaukaskatts vegna innflutnings á tækjabúnaði til gagnavera á Íslandi, og þjónustusölu gagnavera, með það að markmiði að þær reglur sem hér gilda verði sambærilegar við það sem gildir innan Evrópusambandsins.

Verkefni á sviði samgöngumála.

Viðræður hafa verið í gangi varðandi þátttöku lífeyrissjóðanna í vegaframkvæmdum, þar á meðal eru Suðurlandsvegur, Vesturlandsvegur og Vaðlaheiðargöng. Tæknilegur undirbúningur er víða langt kominn.

Undirbúningur samgöngumiðstöðvar í Reykjavík og stækkun flugstöðvar á Akureyrarflugvelli er einnig langt á veg kominn.

- Ýmsar aðrar aðgerðir í atvinnumálum samkvæmt aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar 6. mars 2009

Aðgerðir í atvinnumálum samkvæmt aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar sem lögð var fram 6. mars 2009 hafa leitt til sköpunar um 2.392 starfa eða ríflega 56% af upphaflegum markmiðum í mars 2010 og eru verkefni í byggingariðnaði, nýsköpun og sjávarútvegi ásamt öðrum enn í framkvæmd.

PDF-skrá Stöðugleiki
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.

Ferry heillaði í Hörpu

00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
Í gær, 14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bílskúrssala.
Velkomin á bóka-, plötu- og flóamarkað að Melgerði 16, 108 Reykjavík. Opið alla...
Heimili í borginni- www.eyjasolibudir.is
Fallegar 2-3ja herb. íbúðir fyrir fjölskyldur og ferðalanga. ALLT til ALLS. Rúm ...
3 Silky Terrier strákar til sölu
Tilbúnir til afhendingar. Heilsufarssk., örmerktir og fullbólusettir. Ættbókarf...
Natuzzi hornsófi til sölu
Flöskugrænn Natuzzi leðursófi. 2+horn+2. Verð 80 þús. kr. Sími 844 4615 eða ragn...
 
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Sýslumaðurinn í vík - framhald uppboðs

Uppboð www.naudungarsolur.is Framhald up...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...