Áminning felld úr gildi
Héraðsdómur Vestfjarða hefur fellt úr gildi áminningu, sem sýslumaðurinn á Vestfjörðum veitti löglærðum fulltrúa hjá embættinu í júlí á síðasta ári.
Taldi dómurinn, að sýslumaðurinn hefði brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýslulaga með því að áminna fulltrúann án þess að grípa áður til annarra og vægari úrræða og veita fulltrúanum tækifæri til að taka sig á í starfi og laga vinnubrögð sín að kröfum sýslumanns.
Fram kemur í dómnum að fulltrúinn, sem er kona, veiktist fyrri hluta ársins 2009 og þurfti af þeim sökum að leggjast inn á sjúkrahús og gangast undir uppskurð. Var fulltrúinn frá vinnu vegna þessa í rúman mánuð og kom síðan til starfa í byrjun júlí eftir sumarleyfi. Þá afhenti sýslumaðurinn konunni bréf þar sem kom fram að hann áformaði að veita henni áminningu fyrir óhlýðni við fyrirmælum yfirmanns, óvandvirkni í starfi og fyrir að sýna ekki fullnægjandi árangur í starfi. Formleg áminning var síðan veitt hálfum mánuði síðar.
Fulltrúinn höfðaði mál og krafðist þess að áminningin yrði felld úr gildi. Í niðurstöðu dómsins segir m.a. að læknisvottorð þyki skjóta styrkum stoðum undir þann málatilbúnað fulltrúans að starfsþrek hans hafi að nokkru leyti verið skert í mars og apríl 2009 og beri til þess að líta við úrlausn málsins eftir því sem við á.
Þá segir dómurinn, að taka megi undir að fulltrúinn hafi ekki sinnt nægilega starfsskyldum sínum og gert mistök við meðferð mála, sem sýslumaðurinn tilgreindi. Fram hjá því verði hins
vegar ekki
litið að áminning sé íþyngjandi
stjórnvaldsákvörðun sem geti til starfsmissis. Verði ekki séð, að sýslumaður hafi áður aðhafst nokkuð það sem með réttu verður talin tilraun til að fá fulltrúann til að
taka sig á í starfi og laga vinnubrögð sín að kröfum sýslumanns. Féllst dómurinn á kröfuna um að fella áminninguna úr gildi.
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 2. júní 2010, Innlent Kyrrsetning felld úr gildi
- Fimmtudagur, 4. mars 2010, Innlent Sýslumaður var vanhæfur
- Þriðjudagur, 21. september 2010, Innlent Bíða efnislegrar niðurstöðu
- Föstudagur, 3. júní 2011, Innlent Áminning ekki dæmd ógild
- Fimmtudagur, 8. apríl 2010, Innlent Sendi ráðherra andmæli
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































