Lántakendur losni úr snörunni
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is
Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri fjármögnunarfyrirtækisins Lýsingar hf., segir að fyrirtækið ætli að bíða átekta eftir frumvarpi félagsmálaráðherra um lækkun bílalána í erlendri mynt og að lögin verði samþykkt. „Þá sitja allir við sama borð og við förum eftir þeim lögum sem verða sett,“ segir hann.
Um 40 þúsund myntkörfulán
SP-Fjármögnun tilkynnti í fyrradag að fyrirtækið ætlaði frá og með gærdeginum að bjóða upp á lækkun höfuðstóls erlendra bílalána. Fram hefur komið að samtals séu um 120 milljarðar útistandandi í ríflega 53 þúsund bílalánum og þar af séu um 112 milljarðar í um 40 þúsund myntkörfulánum.Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármögnunarfyrirtækisins Avant hf., segir að Avant hafi skoðað hvað hægt væri að gera í stöðunni, drög að frumvarpi liggi fyrir og síðan falli stóri dómur um lögmæti erlendra lána í Hæstarétti. Ekki sé ráðlegt að grípa til einhverra aðgerða nú og þurfa að snúa við í miðri á eftir nokkrar vikur eða þegar niðurstaða Hæstaréttar liggur fyrir.
Því hefði Avant ákveðið að bíða átekta, staldra við, skoða stóru myndina og taka síðan ákvarðanir í framhaldi af því. Almennt geti fólk gert ráð fyrir því að fjármögnunarfyrirtækin komi til móts við viðskiptavini sína, þannig að þeir beri ekki skaða af því að vera hjá einu fyrirtæki frekar en öðru, en ótal spurningar brenni á öllum viðkomandi.
Fljótlega verða tekin fyrir í Hæstarétti tvö mál um lögmæti erlendra lána. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra segir að frumvarpið um lækkun bílalána í erlendri mynt sé ótengt þessum málum. Feli niðurstaða dóms Hæstaréttar í sér frekari rétt fyrir lántakendur njóti þeir hans og ef ekki tryggi frumvarpið þeim ákveðinn rétt.
- Eftir stendur sú spurning hvort það borgar sig að breyta erlendum lánum í íslenskar krónur.
Bloggað um fréttina
-
Vilhjálmur C Bjarnason Kanntu annann brandara... -
Guðmundur Ásgeirsson Sex orð um gengistryggingu #6
Innlent »
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 21. maí 2010, Innlent Hámarkslækkun 3 milljónir
- Föstudagur, 24. apríl 2009, Innlent Avant býður aðlögun vegna bílalána
- Þriðjudagur, 25. maí 2010, Innlent Lækka bílalán um 20-40%
- Föstudagur, 18. júní 2010, Innlent Senda ekki út innheimtuseðla
- Miðvikudagur, 26. maí 2010, Innlent Ráðherra fagnar frumkvæði SP
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































