Gríðarleg vonbrigði að fresta móti

stækka

mbl.is

„Þetta eru auðvitað gríðarleg vonbrigði að það þurfi að fresta mótinu nú þegar allt er tilbúið. En það er ekkert annað hægt að gera í núverandi stöðu þar sem velferð íslenska hestsins verður að vera í fyrirrúmi,“ segir Jóna Fanney Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Landsmót hestamanna. 

Ákveðið var á fundi hagsmunaaðila í hrossarækt fyrr í dag að fresta landsmóti hestamanna í sumar vegna hrossapestarinnar sem herjað hefur á íslenska stofninn. Halda átti landsmótið á Vindheimamelum dagana 27. júní til 4. júní.

Að sögn Jónu Fanneyjar var ákveðið að fresta mótinu til 2011 í góðu samstarfi við Alþjóðasamtök Íslandshestafélaga (FEIF). „Það kemur til af því að heimsmeistaramót er haldið það ár sem landsmótið er ekki. Þannig að á næsta ári verður bæði heimsmeistaramót og landsmót.“

Jóna Fanney segir ljóst að tjónið sem hljótist af því að fresta mótinu hlaupi á milljörðum. „Þá er ég að vísa til bæði beinna og óbeinna áhrifa,“ segir Jóna Fanney og bendir á að auk landsmótsins verði hrossaræktendur og ferðaþjónustan fyrir miklu tjóni. „Ekki bara í Skagafirði heldur á landinu öllu, því erlendir gestir landsmótsins fara oft á tíðum um landið.“

Að sögn Jónu Fanneyjar var búist við við um 10-12 þúsund gestum á landsmótið. Þegar var búið að selja á fjórða þúsund miða og verður fólki boðið að geyma miðann sinn um ár. Jóna Fanney áætlar að um 25% gesta á landsmótinu komi erlendis frá. 

„Mér finnst það sýna það og sanna þegar svona voveiflegur atburður gerist, sem ekki er af mannanna völdum, hvað landsmótið er gríðarlega mikilvægt og mikill og sterkur markaðsgluggi. Og það er einmitt ástæðan fyrir því að við frestum þessu til 2011 í stað þess að bíða til 2012. Því greinin þarf að koma sér að auk þess sem við verðum að gefa barnaflokkum tækifæri til þess að komast á landsmót, annars er hætta á því að við missum heila kynslóð út.“ 

Kalla eftir rannsókn á upptökum hestapestarinnar

Vegna smitandi hósta í hrossum var haldinn fundur hagsmunaaðila í hestamennsku og hrossarækt ásamt yfirvöldum dýralæknamála, starfandi dýralæknum og fulltrúum leiðbeiningaþjónustu og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Fundurinn var haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 31. maí 2010 og þar var eftirfarandi ályktun samþykkt:

„Fundurinn samþykkir að fresta Landsmóti hestamanna sem fram átti að fara á Vindheimamelum í Skagafirði 27. júní til 4. júlí í sumar.
Fundurinn beinir því jafnframt til stjórna Landssambands hestamannafélaga (LH) og Bændasamtaka Íslands (BÍ) að þær vinni að því í góðu samstarfi við Alþjóðasamtök Íslandshestafélaga (FEIF) að mótið verði haldið árið 2011 á Vindheimamelum í Skagafirði.
Jafnframt skorar fundurinn á áður nefnd samtök að endurskoða sýninga- og keppnishald næstu mánaða þannig að öll hross sem stefnt var með í dóma,  sýningar og keppni á árinu eigi þann möguleika.

Fundurinn skorar á Matvælastofnun og Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum að rannsakaður verði til hlítar sá smitandi hósti sem nú herjar á íslenska hrossastofninn. Leita þarf allra leiða til að greina eðli og uppruna sjúkdómsins svo og hvort eitthvað það í hrossahaldi landsmanna sé þess valdandi að erfiðara sé að fást við þá stöðu sem upp er komin en ella. Sett verði fram skipuleg sóttvarnaráætlun til að fyrirbyggja að smitsjúkdómar nái hér bólfestu í framtíðinni.
Fyrir liggur að rannsóknir þær og aðgerðir sem grípa þarf til eru mjög kostnaðarsamar. Fundurinn skorar því á stjórnvöld að tryggja Matvælastofnun og Tilraunastöðinni að Keldum nægjanlegt fjármagn til allra þeirra aðgerða sem grípa þarf til.

Ljóst er að fjárhagslegt tjón hrossaræktenda, hestaíþróttarinnar og annarrar hestatengdrar starfsemi auk ferðaþjónustu er þegar orðið gífurlegt. Þá hefur Landsmót hestamanna ehf. einnig orðið fyrir miklum skakkaföllum því er afar brýnt að stjórnvöld tryggi fjárhagslegan grunn landsmótshalds til framtíðar.“

 


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Rúmir 545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »
Hera Björk - Evróvisjónfari ´10

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar

Jón Bjarnason alþingismaður
12:09 Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir framgöngu Landsbankans vera eins og stríðsrekstur og að hún gangi þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar í byggðamálum. Jón hefur farið fram á að sérstök umræða fari fram á Alþingi um málið sem allra fyrst. Meira »

Bangsi fer með í Græna herbergið

Greta Salóme Stefánsdóttir á æfingu í Kristalshölllinni í Bakú í gær.
09:59 Íslenski Evróvisjónhópurinn býr sig nú undir lokaæfinguna í Kristalshöllinni í Bakú. Þau eru ekki hjátrúarfull, en segjast hafa tröllatrú á bangsa sem prýddur er íslenska fánanum. Þau munu halda frá Aserbaídsjan skömmu eftir að keppni lýkur. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Þarf meiri tíma til að finna lausn

Í Fossvogskirkjugarði.
10:01 „Við vorum með frumvarp um kirkjugarðana á okkar vinnsluborði en það reyndist þurfa meiri skoðunar við innan stjórnsýslunnar,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra um fjárhagsvanda kirkjugarða landsins. Meira »

Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta

09:49 Í vor gafst íslenskum dýralæknum tækifæri til að auka við þekkingu sína í greiningu og meðhöndlun á tannvandamálum og öðrum meinum í munni hesta. Auk lifandi hesta með og án þekktra vandamála var unnið með hrosshausa sem safnað hafði verið í sláturhúsi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
VW og Skoda varahlutir 5341045
Eigum til notaða varahluti í VW, Skoda, Audi og Pajero frá '02. Kaupum bíla til ...
OPEL ASTRA ENJOY
Opel Astra Enjoy Nýskr. 4/2007, ekinn 93 þ. km, bensín, 5 g...
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
TIL LEIGU
Til leigu nýinnréttuð skrifstofuherbergi í 104 Rvk. Securitas-öryggiskerfi. Tölv...
 
Breyting á aðalskipulagi norðurþings

Norðurþing Skipulags- og byggingarfullt...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Markaðsmaður opnar sig !
Stjórnunarstörf
Markaðsmaður opnar sig Hef marg...
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...