Utanríkisráðherra fordæmir árás

Össur Skarphéðinsson
Össur Skarphéðinsson Sameinuðu þjóðirnar

Utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, fordæmir árás Ísraelsmanna á skipalest með hjálpargögn, sem var á leið til Gaza í nótt. Allmargir Norðurlandabúar voru um borð, Evrópuþingmenn og fulltrúar friðarhreyfinga. Samkvæmt fréttaskeytum létu að minnsta kosti 19 lífið í árásinni.

Utanríkisráðherra tekur undir kröfur, m.a. Evrópusambandsins og Sameinuðu þjóðanna, að árásin verði rannsökuð í þaula. Ekki sé hægt að þola að Ísraelar beiti ítrekað valdi með þessum hætti, samkvæmt tilkynningu.

„Gaza er í raun risastórt fangelsi þar sem alþjóðalög eru brotin á íbúunum. Þessu verður að linna,” segir ráðherra í fréttatilkynningu. Íslensk stjórnvöld krefjast þess að Ísrael aflétti herkvínni gegn Gasa nú þegar.

Utanríkisráðherra mótmælir framgöngu Ísraela harðlega í bréfi til utanríkisráðherra Ísraels og hafa stjórnvöld óskað eftir fundi vegna málsins með sendiherra Ísraels gagnvart Íslandi sem starfar í Ósló.  Þá fagnar ráðherra því að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ætli að taka málið til umfjöllunar í New York síðar í dag.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert