Fréttaskýring: Góður gangur en ekki sitja allir við sama borð
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is
Björn Arnaldsson, hafnarstjóri í Snæfellsbæ, gagnrýnir að ekki skuli allir sitja við sama borð í strandveiðunum. Á þeim svæðum þar sem flestir sæki um leyfi til strandveiða komi minna í hlut hvers og eins. Nær hefði verið að óska fyrst eftir umsóknum um leyfi til veiðanna og ákveða síðan hámark afla á hverju svæði. Jafnvel hefði átt að veiða úr einum potti, þá hefðu allir setið við sama borð hvar sem er á landinu. Nú sé fyrirkomulagið þannig að fyrst sé hámark afla á hverju svæði ákveðið, síðan sé auglýst eftir umsóknum.
Máli sínu til stuðnings nefnir Björn að miðað við þann fjölda sem þegar hafa fengið leyfi fái leyfishafi á A-svæði að veiða 11,7 tonn, 23 tonn á svæði B, 18 tonn á svæði C og 7 tonn á svæði D.
Nánast allt á markað
Í fyrra voru hafnirnar í Snæfellsbæ: Rif, Ólafsvík og Arnarstapi, með tæplega 12% af strandveiðiaflanum eða 450 tonn af 3.900 tonnum. Mest af afla strandveiðibátanna er set á fiskmörkuðum og fer til ráðstöfunar hjá kaupendum víða um land. Tæplega 280 krónur fengust fyrir kíló af óslægðum þorski 10. maí og tæplega tæpar 330 krónur í gær.Einar Guðmundsson, vigtarmaður á Akranesi, segir að líflegt sé við höfnina meðan strandveiðar standi yfir og um 20 bátar séu byrjaðir þennan veiðiskap frá Akranesi. Vel hafi gengið í maímánuði og bátarnir náð allt að níu róðrum frá 10. maí, áður en hámarki var náð. Aðeins má róa fjóra virka daga vikunnar og er heimilt að koma að landi á hverjum degi með 650 kíló af slægðum þorski eða þorskígildum. Skagabátarnir sækja mikið á Hraunin og í Forirnar og önnur hefðbundin mið Akurnesinga. Aflinn fer að mestu á markað og ekkert af honum er unnið á Akranesi að sögn Einars.
Annir í Vaktstöð siglinga
Um hádegi í gær voru tæplega 700 bátar á sjó. Þegar veður er sem best og strandveiðar og grásleppuvertíð á fullu eru flestar fleytur á sjó. Mikið er þá um að vera í Vaktstöð siglinga því bátarnir þurfa að tilkynna sig inn og úr höfn. Allir bátar sem stunda strandveiðar þurfa að hafa haffærisskírteini og þufa að hafa staðist búnaðarskoðanir.Fiskistofa hafði í gær gefið út 558 leyfi til strandveiða og hófst nýtt veiðitímabil með nýjum mánuði. Flest eru leyfin á veiðisvæðum A og D. Einungis 36% af aflaheimildum voru nýtt í maímánuði á svæði B, sem nær frá Strandabyggð til Grýtubakkahrepps, og 39% á svæði C, sem nær frá Þingeyjarsveit til Djúpavogshrepps.
Ónýttar aflaheimildir flytjast á milli mánaða og um 228 tonn færast yfir í júnímánuð á svæði B og 233 tonn á svæði C, samkvæmt upplýsingum Fiskistofu. Afli í hverjum róðri í maí var mjög misjafn eftir svæðum. Mestur var hann á svæði A eða 649 kg en minnstur á svæði C, 376 kg að meðaltali í róðri. Langmest er af þorski í aflanum eða 87,9% og ufsi var 10,5%.





































