Viðamiklar aðgerðir lögreglu
Lögreglumenn frá Akranesi og Borgarnesi hafa staðið í ströngu í dag og hafa flestallir lögreglumenn frá báðum stöðum verið við störf. Bíll frá sérsveit ríkislögreglustjóra tók að sér eftirlit og útköll í umdæmunum um tíma í dag svo heimamenn gætu sinnt þeim verkefnum sem leysa þurfti.
Fjórir í haldi vegna innbrota í sumarbústaði
Í gærkvöldi var maður handtekinn vegna gruns um innbrot í sumarbústað í nágrenni Akraness. Þrír til viðbótar voru svo handteknir vegna sama máls í dag. Við yfirheyrslur vaknaði grunur um að mennirnir væru einnig viðriðnir innbrot og skemmdarverk í fleiri bústöðum í Borgarfirði. Eru mennirnir grunaðir um innbrot í liðlega 30 sumarbústaði. Einn, sá er handtekinn var í gær, var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á næsta mánudag á tíunda tímanum í kvöld.
Kannabisræktun á Akranesi
Um miðjan dag fóru þessir sömu lögreglumenn í húsleit á Akranesi í þeim tilgangi að stöðva kannabisræktun sem grunur lék á að væri í gangi. Við leitina fundust 6 kannabisplöntur sem voru vel á veg komnar og u.þ.b 20 gr. af öðrum fíkniefnum. Tollverðir með leitarhunda aðstoðuðu lögregluna við leitina.
Skemmdarverk og hiti í mönnum
Þegar liðið var á kvöld og menn héldu nú að um væri að hægjast var tilkynnt um að stórum blómapotti hefði verið kastað inn um glugga á íbúðarhúsi. Tveir lögreglumenn fóru á vettvang. Þegar þangað kom reyndist mikill hiti í fólki og óskuðu þeir eftir fleiri lögreglumönnum á vettvang. Tveir til viðbótar fóru til aðstoðar og var farið í að skakka leika.
Lögreglubifreið stolið í miðju útkalli
Urðu lögreglumenn þess allt í einu varir að öðrum lögreglubílnum var ekið burtu og varð ljóst að einhver hafði einfaldlega stolið honum. Var honum að sjálfsögðu snarlega veitt eftirför og stöðvaði hann aksturinn eftir nokkur hundruð metra. Sá er sat undir stýri var handtekinn og reyndist bæði undir áhrifum áfengis og fíkniefna, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu.
Bloggað um fréttina
-
Eyjólfur Jónsson Tími til að handtaka þé sem eiga að handtaka -
Jón Pétur Líndal Ekki hissa þó löggubílnum hafi verið stolið. -
Hilmar Guðmundsson Viðamiklar aðgerðir lögreglu
Innlent »
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 2. júní 2010, Innlent Fleiri innbrot
- Mánudagur, 22. nóvember 2010, Innlent Líkamsárás í sumarbústað
- Föstudagur, 29. janúar 2010, Innlent Tveir handteknir fyrir fjölda innbrota
- Miðvikudagur, 12. janúar 2011, Innlent Stálu númeri af löggubíl
- Miðvikudagur, 31. mars 2010, Innlent Fyrsti kvenformaðurinn í Fáki
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































