Hjálmur bjargaði 12 ára dreng

Ekið var á dreng á reiðhjóli en hjálmurinn bjargaði

Ekið var á dreng á reiðhjóli en hjálmurinn bjargaði Úr safni

Hjálmur bjargaði lífi 12 ára drengs á reiðhjóli þegar ekið var á hann á Selfossi um hálffjögur leytið í dag.

Drengurinn var að hjóla yfir götu við hringtorg á Eyrarvegi þegar bíll, sem var á leið inn í hringtorgið ók á hann. Við það kastaðist drengurinn upp á vélarhlífina og brotnaði framrúða bílsins þegar hjálmvarið höfuð drengsins skall á henni.

Lögreglan á Selfossi telur líklegt að hjálmurinn hafi þarna bjargað lífi drengsins og undirstrikar nauðsyn þess að nota hjálma við hjólreiðar.

Drengurinn slapp með mar og eymsli og var sendur heim að lokinni læknisskoðun á Sjúkrahúsi Selfoss.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Greiddi fyrir vændi barns

16:50 Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt karlmann í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að greiða 14 ára pilti fyrir kynferðismök. Maðurinn játaði sök. Meira »
Bílum er lagt meðfram heimreiðinni að Bessastöðum.

Margt um manninn á Bessastöðum

16:17 Margir hafa ákveðið að grípa tækifærið og heimsækja Bessastaði og Bessastaðakirkju sem eru opin almenningi í dag milli kl. 16 og 20. Opnunin er í tilefni Safnanætur og Vetrarhátíðar í Reykjavík. Meira »

Tilraunaverkefni í vinnumiðlun

Samningurinn var undirritaður í dag.
16:14 Í dag var undirritað samkomulag um að setja í gang tilraunaverkefni sem hefur að markmiði að auka og efla vinnumiðlun, ráðgjöf og þjónustu við atvinnuleitendur. Það mun ná til um 25% atvinnuleitenda á landinu. Stefnt er að því að verkefnið hefjist í byrjun maí. Meira »

Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna

Séð yfir Skeiða- og Gnúverjahrepp.
16:04 Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur samþykkt að lækka starfshlutfall oddvita og að ræða við Kristófer Arnfjörð Tómasson viðskiptafræðing, um að taka að sér framkvæmdastjórastöðu hjá sveitarfélaginu. Meira »

Boðuð á fund í Reykjavík

Össur Skarphéðinsson og Jóhanna Sigurðardóttir
16:00 Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa reynt að fá Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, norður á fund vegna alvarlegra stöðu í byggðamálum. Samtökin hafa nú verið boðuð á fund í Reykjavík ásamt öðrum fulltrúum landshlutasamtaka. Meira »

Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu

Frá stofnfundi Samstöðu, stjórnmálaflokks undir forystu Lilju Mósesdóttur.
16:06 Stéttarfélagið Samstaða í Húnavatnssýslum gerir athugasemd við nafn nýs flokks Lilju Mósesdóttur sem ber nafnið Samstaða.  Meira »

Stefna að opnun í Skálafelli

Stefnt er að því að opna í skíðasvæðið í Skálafelli.
16:03 Borgarráð hefur samþykkir að beina því til stjórnar skíðasvæðanna að hefja viðræður við skíðadeild KR um að deildin sjái um rekstur svæðisins. Meira »

Skipulagsmálum víða áfátt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
15:57 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að ekki sé rétt að hús hafi verið rifin í borginni Bakú í Aserbaídsjan vegna byggingar Kristalshallarinnar. Hann segir að nóg sé að fara í miðbæ Reykjavíkur til að finna fólk sem búi í óvissu um nánasta umhverfi sitt og í grennd við hús sem séu látin drabbast niður. Meira »

Bleikjueldi ekki háð umhverfismati

15:47 Eldi á allt að 200 tonnum af bleikju á ári í Galtalæk, Rangárþingi ytra, er ekki háð mati á umhverfisáhrifum að mati Skipulagsstofnunar. Íslensk matorka rekur fiskeldisstöðina í Galtalæk. Meira »

Karl biskup í Kenía

Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands.
15:34 Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands hefur undanfarna tvo daga heimsótt starfssvæði íslenskra kristniboða í Pókothéraði í Keníu ásamt Jónasi Þórissyni framkvæmastjóra Hjálparstarfs kirkjunnar. Meira »

Ekið á stúlku á Akureyri

15:38 Ekið var á stúlku á Mýrarvegi á Akureyri um hádegisleytið í dag. Stúlkan sagði við bílstjórann að hún væri ómeidd og hélt hann því leiðar sinnar. Skömmu síðar kom í ljós að hún var með minniháttar meiðsli á fæti. Meira »

Bjóða brúðhjónunum til Íslands

15:25 Iceland Express ætlar að bjóða breskum brúðhjónum til Íslands en parið varð fyrir því að brotist var inn hjá því á brúðkaupsnóttina og peningum sem ætlaðir voru í brúðkaupsferð til Íslands stolið. Brúðurin fór að gráta af gleði er hún fékk símtalið frá Iceland Express. Meira »

Um 65% með leka púða

Búið er að skoða um 100 konur sem eru með PIP-púða.
15:16 Rúmlega 100 konur sem erum með PIP-brjóstapúða eru búnar að koma í ómskoðun hjá Krabbameinsfélaginu. Um 65% þeirra eru með leka púða. Meira »

Áfallin staða A-deildar í plús

Fjármálaráðuneytið.
14:44 Áfallin staða A-deildar LSR, þ.e. skuldbindingar umfram eignir, nam í árslok 2010 tæpum 4,2 milljörðum króna eða 2,5% af eignum. Þetta segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá fjármálaráðuneytinu og Fjársýslu ríkisins. Meira »

Fastur á Ódrjúgshálsi í nótt

Helgi Auðunsson, eigandi flutningafyrirtækisins Nönnu á Patreksfirði.
14:30 „Það er skelfilegt að búa við þetta árið 2012,“ segir Helgi Auðunsson, eigandi flutningafyrirtækisins Nönnu á Patreksfirði, en flutningabíll frá fyrirtækinu sat fastur á Ódrjúgshálsi í alla nótt vegna erfiðrar færðar. Hann átti að vera kominn til Patreksfjarðar í morgun, en var enn ekki kominn kl. 14 í dag. Meira »

Veita Hvít-Rússum aðstoð

Rauði krossinn aðstoðar fólk í Hvíta-Rússlandi
14:50 Rauði kross Íslands hefur sent neyðarstyrk sem nemur tveimur milljónum króna til aðstoðar fórnarlömbum kuldabylgjunnar í Hvíta-Rússlandi en frost í landinu hefur farið niður fyrir þrjátíu gráður á síðustu vikum. Meira »

Er hóflega bjartsýnn

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, er nú staddur í Bretlandi.
14:42 Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra fór yfir stöðuna í makríldeilunni með sjávarútvegsráðherra Bretlands á fundi í Lúndunum í gær. „Ég skynjaði alveg sama áhuga á því að ná samkomulagi eins ég hef gert í Brussel og víðar. En að sama skapi þá viðurkenna menn það að þetta er dálítið flókið og ber mikið í milli.“ Meira »

„Engin minnihlutastjórn“

Kópavogur
14:30 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Kópavogs hefur hug á að lækka fasteignagjöld í bænum. Fara á í söluátak á lóðum, en tugir lausra byggingalóða eru óbyggðar. Um 44% þeirra sem kusu í síðustu sveitarstjórnarkosningum standa á bak við nýja meirihlutann. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TIL LEIGU BÍLSKÚR / GEYMSLUHÚSNÆÐI
TIL LEIGU TÆPL. 30 FERMETRA BÍLSKÚR Á AFGIRTU, MALBIKUÐU OG VÖKTUÐU SVÆÐI (VÖRÐ...
Taktu hundinn með til Akureyrar
Gisting í nýstandsettum herbergjum á besta stað í bænum. Gott verð. Upplýsingar ...
Notuð húsgögn á www.Haninn.is
Oft er hægt að gera góð kaup, ef fylgst er með auglýsingum okkar reglulega á www...
Head skíði og Salomon skíðaskór
Ársgömul og mjög lítið notuð Head skíði 120 cm hvít með svörtum stöfum og með mj...
 
Landsst.
Félagsstarf
Landsst. 6012020919 VII...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl...
Fundur fulltruaráðs sjálfstæðisfélaganna í kópavogi

Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Kó...