Kvótamarkaður talinn skilvirkur

Góður fengur.
Góður fengur. mbl.is/RAX

Sterkar vísbendingar eru um að markaðurinn fyrir aflaheimildir sé skilvirkur. Kemur það fram í skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur unnið fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið.

Hagfræðistofnun bendir á að stofnanarammi markaðarins er ágætlega til þess fallinn að skapa skilvirkan markað. Viðskiptakostnaður er lágur, upplýsingaflæði virkt og auðvelt að fá tilboð. Þá eru viðskipti með aflamark lífleg og hafa farið vaxandi. Þá er vakin athygli á því að verð hefur verið stöðugt og markaðurinn hagað sér í takt við það sem vænta megi.

Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra óskaði eftir þessari úttekt vegna þess að hann velti því fyrir sér hvort einhverjir markaðsbrestir gætu verið á leigumarkaðnum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert